Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1981, Page 26

Ægir - 01.09.1981, Page 26
Jón Þ. Þór: Hákarlaveiðar Eyfirðinga á síðari hluta 19. aldar Framhald IV. Stofnun hins eyfirzka ábyrgðarfélags Þess hefir verið getið hér að framan, að oft mun það hafa staðið í vegi fyrir því, að menn kæmu sér upp þilskipi, að þeim þótti áhættan fullmikil og spurðu því sjálfa sig: „Hvernig fer, ef skipið tapast?“ Mun þessi hræðsla við það að verða á einni svipstundu fyrir allt að því óbætanlegu tjóni einnig oft hafa valdið því, að sömu menn áttu oft tvö eða jafnvel fleiri skip i samlögum, stundum tveir og tveir, en stundum enn fleiri saman. Dæmi um slíkan sameignarbúskap finnast að visu áður en þilskipin komu til sögu, en þá jókst hann að mun, og stafaði það eðlilega einnig mjög af því, að menn töldu sig ekki nægilega sterka fjárhagslega til þess að koma sér upp þilskipi einir sér, a.m.k. ekki fyrst í stað. Hafi mönnum ekki verið frá upphafi ljós sú hætta, sem því fylgdi að gera út til hákarlaveiða, þá varð hún a.m.k. öllum ljós um leið og þilskipin komu til sögunnar. Samtímis sáu menn einnig þörfina á því, að stofnað yrði félag til að vátryggja skipin. Þess hefur verið getið hér að framan, að Norðlendingar litu í upphafi allmikið til Vestfjarða um fyrirmyndir í þilskipaútgerð. Um 1850 höfðu ísfirðingar komið sér upp sjóði, er bæta skyldi eftir föngum skaða þá, er verða kynnu á þilskipum þar vestra. Ekki varð þó skaðabóta- sjóður þeirra ísfirðinga langlifur, né heldur athafnasamur, a.m.k. ekki ef miðað er við það, er siðar varð Norðanlands. Þar er fyrst minnzt á ábyrgðarfélagshugnyndina á prenti norðanlands, er Norðri skýrir frá því i marz 1854, að ísfirðingar hafi þá um veturinn misst tvær jaktir, en hafi nú ráðstafað af skaðabótastofni sínum 200 rd. til þeirra, sem verðugastir þóttu, og mest nauðsyn var að hjálpa. Af þessari frásögn virðist mega ráða, að skaðabótasjóður þessi hafi ekki einungis verið skipatryggingafélag heldur einnig að einhverju leyti líftryggingasjóður sjómanna. Svo virðist sem ráðstafað hafi verið fjármunum til fátækra sjómannaheimila, ef fyrirvinnan fórst í sjó. Þa skýrir Norðri einnig frá því, að ísfirðingar hafi nu tekið sig saman um að mynda nýtt skaðabótafélag> sem fyrst um sinn ætli að tryggja helming í 15 þilskipum. Segir blaðið tólf þilskipaeigendur standa fyrir hinum nýja sjóði og leggi hver fram 500 rd. eða samtals 6000 rd., sem standi sem veð fyrir helmingi af andvirði hinna fimmtán þilskipa- Að þessari frásögn lokinni, hvetur svo Norðri til þess, að menn í öðrum landsfjórðungum stofni til samtaka um slík ábyrgðarfélög, svo að ekki þurt' ætíð að flýja á náðir erlendra tryggingafélaga. Svo sem að framan getur, minnist höfundur greinar- innar ,,Um nytsemi innlendra þiljuskipa við ísland”, sem birtist í ágústblaði Norðra 1854, einnig á nauðsyn þess að stofna skipatryggingU' félag, en annars er ekki svo að sjá sem hugmynd þessi hafi fengið byr undir báða vængi þegar í upp' hafi. Sú tregða, sem var á framkvæmd málsins a þessu stigi, hefur vafalaust stafað mikið af því, að menn voru ekki enn búnir að átta sig á þvi, um hve mikilsvert mál var að ræða. Þeir voru því vanastir frá fornu fari að pukra hver í sínu horni og treysta á hjálp guðs og góðra manna ef illa færi. Einnig er það veigamikið atriði, þegar rætt er um þá töf, er varð á stofnun ábyrgðarfélagsins, jafnvel lönga eftir að öllum var orðin ljós þörfin, að það var enginn sá máttur fyrir hendi, er var nægileg3 afgerandi til þess að drífa félagsstofnunina af stað- Tilfellið er, að á þessum tímum vildu menn sem minnst undir náunganum eiga, engu siður en nú a dögum. Frá því að þær greinar, er nú þegar er getið, birt' 490 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.