Ægir - 01.09.1981, Blaðsíða 30
Hákarlaskip á Oddeyrartanga. Nœst á myndinni er skútan Vonin.
þyrftu ekki að hætta útgerð eða jafnvel að verða
öreigar, eins og dæmi væru til. Síðar segir greinar-
höfundur mjög hreinskilnislega frá því, að þar eð
um félagsskap hafi verið að ræða hafi margir verið
tregir til þátttöku og vonað, að útgerð ábyrgðar-
lausra skipa mundi slampast einhvern veginn
enda höfðu margir sett það skilyrði fyrir þátt-
töku sinni, að sjóðurinn yrði tvískiptur, á Siglu-
firði og Akureyri.
Raunar segir þessi grein, þótt stutt sé, allt það,
sem maður þarf að fá að vita. Allir sáu nauðsyn-
ina, en enginn gat haft nauðsynlegt frumkvæði, og
enginn þorði að treysta öðrum. Þar lá hundurinn
grafinn. Þá segir og í greininni, að eftir allmarga
fundi, sem vafalaust hafa ekki gengið hljóðalaust
fyrir sig, hafi menn þó komið sér saman um að
kjósa nefnd, er semja skyldi: a) lög hins eyfirzka
ábyrgðarfélags, b) erindisbréf virðingarmanna, c)
skuldbindingar fyrir skipseigendur, d) skuldbind-
ingar fyrir skipstjóra og e) skuldbindingar fyrir
háseta. í þessa nefnd voru kosnir þeir Steincke,
Tryggvi Gunnarsson og Einar Ásmundsson. Vitað
er, að þeir boðuðu til stofnfundar félagsins fyrir
vertíðarbyrjun 1868, og var þá m.a. kosin nefnd
virðingarmanna, og skoðuðu þeir öll þilskip
félagsmanna, áður en veiðar hófust þá um vorið. Þetta
fyrsta starfsár félagsins voru tryggð hjá því 17 þil'
skip af 31, sem á félagssvæðinu voru, en þes*
verður að gæta, að Siglfirðingar tóku ekki þátt >
stofnun félagsins.17
Ekki er ólíklegt, að er Steincke tók við stjórn-
taumunum árið 1867, þegar allt stóð fast, haf>
endanlega soðið upp úr og Siglfirðingar hreinlegn
neitað að taka þátt í stofnun félagsins. Þá hefur
Steincke tekið það ráð, sem vafalaust hefur verið
hið eina rétta, að láta þá sigla sinn sjó, en reyna að
halda Eyfirðingum saman um málið. Hins vegar
var þess vandlega gætt að búa svo um lög og reglur
félagsins, að Siglfirðingar geti gengið í félagið að
ári, ef ekki fyrr. Sú varð líka raunin á, næsta ar
voru félagsmenn orðnir 54 og skip í tryggingu alls
31 en 32 voru þá talin á félagssvæðinu. Þetta eina
skip, sem ekki var tryggt mun hafa verið Látra-
Felix, sem aldrei var tryggður, þar eð eigendur
hans trúðu því ekki að hann mundi farast.18)
Raunar var skipið, er hér var komið sögu, orðið
mjög gamalt og fúið, og er því hæpið, að það
mundi hafa fengizt tryggt.
494 — ÆGIR