Ægir - 01.02.1982, Blaðsíða 26
Dagana 27.-28. apríl n.k., er fyrirhugað að
halda ráðstefnu á Ermarsundseyjunni Jersey um
markaðsmál skelfisks í heiminum. Er þetta fyrsta
stóra ráðstefnan sem haldin hefur verið um þetta
málefni og eru væntanlegir fulltrúar frá a.m.k. 20
löndum. Fyrirlestrar verða haldnir af leiðandi sér-
fræðingum á hinum ýmsu sviðum skelfiskiðnaðar-
ins, auk markaðsmála, s.s. skelfiskeldi, fram-
leiðslu og nýjum framleiðsluaðferðum. Að undan-
förnu hefur heimsverslunin með skelfisk vaxið
mikið og öll þróun á því sviði verið ör. Er því orðið
aðkallandi að menn komi saman og ræði málið og
það sem framundan er á þessum vettvangi. Auk
fyrirlestranna verða almennar umræður um hin
ýmsu vandamál sem upp hafa komið og fyrirsjáan-
leg eru í náinni framtíð, s.s. vandamál við
innflutning á skelfiski til EBE-landa, hvernig auka
megi framboð og eftirspurn á skelfiski, hvaða
áhrif auknar veiðar á krilli i Suður-íshafinu komi
til með að hafa á skelfiskmarkaðinn o.fl.
Ráðstefna þessi er skipulögð og fjármögnuð af
Arthur J. Heighway útgáfufyrirtækinu, sem gefur
út m.a. tímaritin „Fishing News International“,
,,Fish Farming International“ og „Fishing
News“. Þeir sem hafa áhuga fyrir að fá nánari
upplýsingar um ráðstefnuna, skulu snúa sér til
Vivien Hill, Lunn Poly Ltd., 5 Friar Street, Carter
Lane, London EC4V 5DT, sími (01) 248-9100 eða
telex 887259.
í fréttatilkynningu frá Fiskifélagi íslands, kemur
fram að verðmæti alls útflutnings landsmanna
1981 nam 6.536 milljörðum króna. Hlutur sjávar-
vöru í þessu verðmæti var 5.179 milljarðar, eða
79.2%. Árið 1980 nam verðmæti alls útflutnings
4.460 milljörðum og þá var hlutur sjávarvöra
3.388 milljarðar, eða 76%.
Helstu sjávarvörur í útflutningnum, magn þeirra
og verðmæti voru þessar:
Magn 1981 F.O.B. Magn 1980 F.O.B'
tonn verðm. tonn verðifl-
netto þús/kr. netto þús/kt-
Frysti flök 103.754 1.663.026 113.999 1.232.002
Óverkaður saltf. 55.952 1.014.141 47.742 491.551 335-328 294.494 139.084 206.1*9 91-226
Skreið 18.985 812.792 12.625
Loðnumjöl . .. . 96.278 327.162 131.617
Loðnulýsi 87.807 201.012 80.424
ísvarinn fiskur . 35.130 199.245 45.209
Saltsíld sérv. ... 16.408 141.825 14.463
Helstu viðskiptalönd 1981 hvað sjávarvöru varðar.
voru þessi:
Bandaríkin ..
Nígería .....
Bretland ....
Portúgal ....
Sovétríkin ..
Þús/kr.
1.383.888
857.542
729.328
702.074
349.441
í þeim löndum, sem hagsmuna eiga að g0213
vegna hvalveiða, eru menn óðum að átta sig á Þv'
að Alþjóðahvalveiðiráðið er u.þ.b. að missa Ö
tök á því ætlunarverki sem því var upphafle^
fyrirhugað, þ.e. að vernda hvali gegn ofveiði me
því að takmarka veiðar þeirra þjóða er P&\
stunda. Þeir sem með þessum málum hafa fylgst 1
undanförnum árum, vita að þeir aðilar ráðsins seI11
því hafa bæst á seinni árum, hafa ekki him1
minnsta áhuga fyrir hinu raunverulegu ástao
hvalastofnanna á hverjum tíma, heldur vinna lsy
og ljóst að því að fá hvali alfriðaða. Haldi fratl
sem horfir, mun þeim vissulega takast þetta, 0
það fyrr en síðar, það er aðeins tímaspursmál P
til þeir hafa náð 3A hlutum af meðlimatölu ráðsiús_
Á hinn bóginn er allt að því útilokað, ef me ,
ætla sér þá dul að fara eftir ályktunum ráðsit>s
framtíðinni, að halda úti hvalveiðiflotum, þarse
hvalveiðileyfi ráðsins gilda aðeins í eitt ár í senl1,
og aldrei að vita hvenær algjört bann skellur^a-
Allar þjóðir sem eru meðlimir að SÞ hafa rétt
að verða fullgildir meðlimir að AlþjóðahvaWe' ^
ráðinu. Sem stendur eru eftirtaldar þjóðir aðm
þess: Argentína, Brasilia, Chile, Kína, Costa R'L‘
74 — ÆGIR