Ægir - 01.04.1983, Qupperneq 26
megnustu ótrú á því að útgerð og fiskvinnsla væru
á einni hendi.
Þegar kom fram yfir miðjan 6. áratuginn þótti
mörgum sýnt, að útgerð nýsköpunartogara frá ísa-
firði yrði brátt lokið. Forráðamenn Norðurtang-
ans tóku þá að huga að nýjum leiðum til að tryggja
hráefnisöflun fyrirtækisins og lá þá beinast við að
hefja útgerð, annaðhvort fyrir eigin reikning eða í
samvinnu við aðra.
Fyrstu öruggu heimildirnar um útgerðaráform
forráðamanna Norðurtangans eru frá sumrinu
1956. Þá stóð til að stofnað yrði á ísafirði nýtt tog-
araútgerðarfélag, sem átti að heita Hafrafell, og
var afráðið að Norðurtanginn yrði þátttakandi í
því. Þetta félag komst þó aldrei á laggirnar og um
haustið 1956 stofnaði Norðurtanginn sitt eigið út-
gerðarfyrirtæki. Það hlaut nafnið Hljer h.f. og
keypti 36 tonna mótorbát, sem skírður var Már.
Hann gekk fyrst til veiða á útvegi Hljes veturinn
1957 og aflaði vel. Þennan bát átti fyrirtækið i tvö
ár og reyndist hann ágæta vel.
En enn var hraðfrystihúsinu ekki tryggt nægilegt
hráefni og haustið 1957 stofnuðu Norðurtanginn
og íshúsfélag ísfirðinga útgerðarfélagið Eir h.f. og
var hugmyndin að það festi kaup á togara, sem afl-
aði hráefnis fyrir bæði húsin. Af togarakaupunum
varð ekki og árið 1961 keypti Norðurtanginn hlut
íshúsfélagsins i Eir h.f. Sama ár lét fyrirtækið
smíða 86 lesta eikarbát í Frederikshavn í
Danmörku. Hlaut hann nafnið Guðbjartur Kristj-
án, en var skírður Dan árið 1964. Þetta skip átti
A-/.S. Dan ÍS 268.
qO
Eir til ársins 1969 og reyndist það bæði happð'. '
aflasælt. Árið 1964 eignaðist Eir h.f. annað skJp'
Það var 149 lesta stálbátur, smíðaður í Flekkefjor
í Noregi. Hann var skírður Guðbjartur Kristjal1’
en heitir nú Vikingur III.
Þegar togarakaup Eir h.f. drógust úr hön1
tóku forráðamenn Norðurtangans að huga að öð
um leiðum til þess að tryggja hraðfrystihúsi111!
nægilegt hráefni. Undir árslok 1958 stofn31'
Norðurtanginn útgerðarfélagið Víking h.f. í saIfl
vinnu við bræðurna Arnór og Hermann Sigur^
syni. Félagið festi kaup á 60 lesta eikarbát, se
hlaut nafnið Víkingur II. og var hann gerður út
ársins 1973, er hann var seldur. Nokkrum árul
áður, eða 1964, höfðu þeir Arnór og Hermann se
Séð heim að Norðurlanga frá
,, Vörinni".
1 Et-T- ’ 1
186 — ÆGIR