Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1983, Blaðsíða 36

Ægir - 01.06.1983, Blaðsíða 36
MINNING Kristján Jóhann Hallsson f. 29. nóv. 1914, d. 25. maí 1983. Deyr fé deyja frændr deyr sjálfr hit sama en orðstírr deyr aldreigi hveims sér góðan getur. „Orðstírr deyr aldreigi, hveim sér góðan getur". Þessar ljóðlínur úr Hávamálum koma upp í huga okkar er við í dag kveðjum hinstu kveðju góðan vin okkar og félaga Krisján Hallsson fulltrúa hjá Fiskifé- lagi íslands. Kristján Hallsson andaðist á Borgarspítalanum h. 25. maí s.l. eftir skamma legu þar, og kom áfail hans okkur samstarfsfélögum hans mjög á óvart. Kristján hóf störf hér hjá Fiskifélaginu árið 1975 og ávann sér strax traust og vináttu allra, enda voru trúmennska, tryggð, glaðværð og góðvild jafnan sterkustu þættir í fari hans. Kristján Hallsson var fæddur á Hofsósi h. 29. nóv. 1914, sonur hjónanna Halls Einarssonar útvegsbónda og konu hans Friðrikku Karenar Jóhannsdóttur. A Hofsósi ólst Kristján upp uns hann hóf nám við Hér- aðsskólann í Reykholti en þaðan lauk hann prófi 1936. Síðan hóf hann nám við Samvinnuskólann og útskrifaðist þaðan árið eftir eða vorið 1937. Þá réðst hann til starfa hjá kaupfélaginu á Þingeyri og starfaði þar næstu tvö árin eða til ársins 1939 er hann tók við kaupfélagsstjórastarfi hjá Kaupfélagi Austur-Skag- firðinga á Hofsósi og þar starfaði hann til ársins 1955, en þá fluttist hann til Stykkishólms þar sem hann tók við kaupfélagsstjórastarfinu. Auk starfa sinna við kaupfélagið á Hofsósi var hann oddviti Hofsóshrepps og sýslunefndarmaður Skagafjarðar frá 1947-1955. Kristjáni var mjög annt um heimbyggð sína og var mjög fróður um sögu hennar og Skagafjarðar í heild, enda átti hann mikinn og góðan bókakost þar um. Sem oddviti Hofsóshrepps vann Kristján ötullega að mörgum hagsmunamálum hreppsins og má nefna að hann átti mestan þátt í lagningu vatnsveitunnar þar, enda var framkvæmd sú mjög umdeild á sínum tíma, en með sérstökum áhuga og dugnaði kom Krist- ján þessu mikla hagsmunamáli Hofsósbúa 1 framkvæmd. Ekki verður sú saga rakin hér, en hún er mörgum vel kunn, sérstaklega á Hofsósi og þar t kring. Frá árinu 1955 til 1963 starfaði Kristján við kaupfélagið í Stykkishólmi en þá flytur hann til Reykjavíkur og hefur störf hjá Tryggva Ófeigssym útgerðarmanni. Þar starfaði hann til ársins 1975 er Tryggvi hætti rekstri. Kom Kristján þá til starfa hja Fiskifélagi íslands og starfaði þar æ síðan. Kristján Hallsson var einn af þessum afburða starfsmönnum, sem sjaldan féll verk úr hendi. Enda naut hann allsstaðar óskoraðs trausts meðal sarn- starfsmanna sinna, jafnt sem yfirmanna. Hin geisl- andi glaðværð og hlýtt viðmót gerði hann nieð afbrigðum vinsælan félaga hvar sem hann fór. Hann var og jafnan, ef þess var nokkur kostur, boðinn og búinn til hjálpar ef til hans var leitað og gerði þar 1 engu mannamun. Samvera við Kristján var mannbætandi. Hann sa alltaf það góða í fólki og reyndi alltaf að sjá björtu og góðu hliðarnar á öllum hlutum. Samt trúði hann 3 baráttu góðs og ills í þessum heimi og sannfærður var hann um tilveru æðri máttarvalda. Léttstígur, léttur i lund, bjartsýnn á lífið og tilveruna og gamansamur- Þetta eru þær minningar sem við samstarfsmenn hans geymum um hann nú þegar samfylgd okkar er lokið- Kristján var mikill áhugamaður um fiskrækt og veiðimaður góður, og kunni frá mörgu skemmtilegu 316 —ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.