Ægir - 01.02.1984, Page 16
Prófessor Yukio Nose:
Fiskveiðar og fiskirannsóknir
í Japan
Formáli þýðanda
Dr. Yukio Nose er prófessor í fiskifræði við háskól-
ann í Tokyo og þekktur fræðimaður í Japan.
Dr. Nose dvaldist á Hafrannsóknastofnun um
tveggja mánaða skeið s.l. vetur til þess að kynna sér
starfsaðferðir íslenskra fiskifræðinga og íslenskar
fiskveiðar almennt.
Erindi þetta hélt dr. Nose á ensku skömmu fyrir
brottför sína og hefi ég snúið því á íslensku með
nokkrum smábreytingum.
Japanir eru ein mesta fiskveiðiþjóð í heimi og er dr.
Nose gjörkunnugur veiðunum og þeim rannsóknum,
sem fram fara í sambandi við þær. Hér er því um að
ræða ákaflega fróðlegar upplýsingar um þessi mál,
sem ég tel að erindi eigi til okkar Islendinga.
Til skýringar á fiskanöfnum í töflu 2 skal tekið fram
að brynstirtla er notað fyrir enska heitið Jack mack-
erel (lat. Trachurus og Decapterus). Geirnefur kallast
saury á ensku (lat. Colabri saira). Gulstirtla heitir
yellowtail á ensku (lat. Seriola quinqueradiatá). Bón-
itó nefnist skipjack á ensku (lat. Katsewonus pela-
mis).
Ayu er japanska nafnið á vatnafiski, sem kallast á
ensku sweetfish en heitir Plecoglossus altivelis á lat-
ínu.
Jón Jónsson.
Japan er eldfjallaland eins og ísland og eru aðal-
eyjarnar fjórar. Þær eru nokkur þúsund kílómetra
langar og ná yfir svæði í norðaustur frá 25 gráðum
norður að 46 gráðum norður. Auk þessa eru óteljandi
smáeyjar og er strandlengjan mjög löng og vogskorin
(1. mynd). Heiturstraumur kemurúrsuðri ogkallast
Kuroshiwo og úr norðri kemur kaldur straumur og
heitir sá Oyashio og flytur með sér mikið af uppleyst-
um næringarefnum. Af þessum sökum er dýra- og
plöntulíf við strendur Japans mjög fjölskrúðugt.
Flatarmál Japanseyja allra er um 370 km2 og árið
1980 var íbúafjöldinn 117 milljónir. Aðeins sextán af
hundraði eru ræktanlegt land og landið er einnig
snautt af málmum og olíu. Japanir hafa því verið
mjög háðir fiskveiðum frá alda öðli og kemur þetta
vel fram á 2. mynd.
Á láréttu línunum er sýnt daglegt framboð á mann
af dýraproteini og á lóðréttu línunum er sýnd dagleg
neysla á mann af dýraproteini úr sjávarafurðum og
sést þar að í Japan er sú neysla um fjórum sinnum
meiri en í öðrum þróuðum ríkjum og um helmingur af
öllu dýraproteini sem neytt er í landinu.
Nettóverðmæti fiskveiða Japana var um þrettán
þúsund milljarðar yena árið 1975, eða um 1% af þjóð-
arframleiðslunni það ár. Þetta samsvarar um tólf
hundruð milljörðum íslenskra króna samkværnt
gengi f maí 1983.
Fiskveiðar veittu um 460 þúsund fiskimönnum at-
vinnu árið 1981 (tafla 1) og var það um 1% af heildar-
vinnuaflinu í landinu.
1. mynd. Hafstraumar umhverfis Japanseyjar. (JapO11
Fisheries Association 1982).
64 - ÆGIR