Ægir - 01.02.1984, Blaðsíða 50
Skip, sem velur sóknarmark skv. ákvæðum 1. mgr.
fær þó ekki leyfi til að veiða meiri þorsk á árinu 1984
en svarar meðalþorskaflamarki í viðkomandi stærð-
arflokki skips og veiðisvæði að viðbættum 15%.
Skipum, sem komu til veiða í fyrsta sinn eftir 1.
nóvember 1980 og verið hafa að veiðum lengur en tólf
en skemur en þrjátíu og sex mánuði, skal ætla afla
skv. reglum 9. gr. miðað við áætlað meðalúthald og
afla tímabilið frá 1. nóvember 1980 þar til þau koma
til veiða.
Utgerðir nýrra skipa og skipa, sem verið hafa
skemur að veiðum en tólf mánuði á tímabilinu 1. nóv-
ember 1980 til 31. október 1983, eða koma í fyrsta
sinn til veiða eftir 1. nóvember 1980, skulu tilkynna
sjávarútvegsráðuneytinu um þessar aðstæður sínar
fyrir 10. febrúar 1984, sbr. áður birtar auglýsingar
ráðuneytisins í dagblöðum.
12. gr.
Hafi á árinu 1983 orðið eigendaskipti eða skip-
stjóraskipti á skipi, skal gefa útgerðinni kost á að
velja um aflamark eða sóknamark skv. 1. og 2. mgr.
11. gr. eins og um nýtt skip væri að ræða í stað afla-
marks þess, sem skipið fengi skv. reglum 7. og 9.
greinar. Útgerðum þeirra skipa, sem svo er háttað um
og gæta vilja hagsmuna sinna í þessu efni, skal gefinn
kostur á að gefa sig fram fyrir 10. febrúar 1984 og
kynna sér þá kosti; sem þær hafa um að velja hvað
varðar aflamark eða sóknarmark. Þessar útgerðir
skulu síðan gefa til kynna fyrir 17. febrúar 1984 hvorn
kostinn þær velji með fyrirvara um breytingar, sem
verða kunna við endanlega úthlutun aflamarks.
Útgerðirnar halda rétti sínum til þess að gera athuga-
semdir við úthlutunina skv. 17. gr.
13. gr.
Sóknarmark skal ákveðið í fjölda úthaldsdaga á
hverju tímabili sbr. 1. mgr. 11. gr. Við ákvörðun
fjölda úthaldsdaga gilda eftirfarandi reglur:
1. Úthald talið í dögum hefst þegar skip heldur úr
löndunar- eða heimahöfn til veiða.
2. Úthaldi lýkur þegar skip kemur í höfn með veiðar-
færi innanborðs til löndunar afla, enda haldi það
ekki úr höfn til veiða fyrr en að a.m.k. fjórum sól-
arhringum liðnum nema því sé það heimilt vegna
loka tímabils.
3. Sigli skip með afla til löndunar erlendis telst sá tími
er fer til siglingar með afla út, löndunar og sigl-
ingar tii heimahafnar aftur sem úthaldsdagar.
14. gr.
Útgerð hvers veiðiskips, sem valið hefur sóknar-
mark, skal tilkynna sjávarútvegsráðuneytinu að
minnsta kosti þremur dögum fyrir upphaf hvers mán-
aðar, hvenær það hyggst nota sóknarheimild sína í
þeim mánuði. Einnig er heimilt að tilkynna hvernig
áformað sé að nota sóknarmark fyrir fleiri en einn
mánuð eða tímabil í einu. Tilkynning þessi er bind-
andi fyrir mánuðinn eða tímabilið og er grundvöllur
eftirlits með framkvæmd þessara reglna. Frávik
vegna tafa í veiðiferðum allt að þremur dögum er
heimilt að færa milli mánaða og tímabila skv. 11. gr.
Fari slík frávik fram úr þremur dögum um einn eða
tvo daga reiknast þeir tvöfaldir til frádráttar á næsta
tímabili. Frávik umfram fimm daga teljast brot á
reglum þessum og skal farið með þau samkvæmt
ákvæðum 23. gr.
15. gr.
Þegar ákveðin er úthlutun veiðileyfa til allra botn-
fiskveiðiskipa 1984, sú sem birt skal 20. febrúar 1984,
sbr. 17. gr., skal meta afla þeirra skipa, sem hafa valið
sér sóknarmark, eins og þau hefðu meðalaflamark
skv. 1. mgr. 11. gr..
Almenn ákvæði, samráðsnefnd og flutn-
ingur aflamarks
16. gr.
Sjávarútvegsráðuneytið ákveður aflamark eða
sóknarmark skv. reglugerð þessari fyrir hvert skip, 10
brl. og stærri, að fengnum útreikningum Fiskifélags
íslands.
Sérstök samráðsnefnd þriggja manna, skipuð
einum fulltrúa frá samtökum sjómanna og einum full-
trúa frá samtökum útvegsmanna auk formanns, sem
skipaður er af ráðherra án tilnefningar, skal fjalla uffl
öll álita- og ágreiningsmál varðandi veiðileyfi, afla-
mark og sóknarmark samkvæmt reglugerð þessari. I
starfi sínu skal nefndin leitast við að velja úrræði sem
stuðla að því að draga úr útgerðarkostnaði. Nefndin
skal sérstaklega fjalla um ákvarðanir samkvæmt
ákvæðum 11. og 12. greinar, svo og til hvaða flokks
samkvæmt a-lið 6. gr. skuli telja hvert skip.
Nefndin skal skila skriflegum tillögum til ráðu-
neytisins um úrlausn einstakra mála.
17. gr.
Tilkynna skal útvegsmönnum um úthlutun afla-
marks eða sóknarmarks til þeirra eigi síðar en 20.
febrúar 1984. Afli og sókn hvers skips á tímabilinu 1-
98-ÆGIR