Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1984, Qupperneq 22

Ægir - 01.02.1984, Qupperneq 22
ástandi fiskstofna og íslenskir starfsbræður okkar, en mig langar til þess að nefna hér til viðbótar tvær að- ferðir er við beitum í Japan. Önnur þeirra er aðferð til þess að meta stærð hrygningarstofna með því að áætla heildareggja- fjölda, meðal frjósemi við ákveðinn aldur og tiltekna aldursdreifingu. Þessi aðferð hefur verið notuð gagn- vart sardínu og makríl í Kyrrahafi. Fiskifræðingar við rannsóknastofnunina í Tokyo, sem notuðu þessa aðferð, hafa bent á að þrátt fyrir að stofnstærð makr- íls hafi verið í hámarki undanfarin ár, þá hafi eggja- fjöldi farið minnkandi og veiðin farið fram úr tillögum um leyfilegan hámarksafla. Þeir leggja því til að fylgst verði vandlega með áhrifum veiðanna á þennan stofn. Hin aðferðin sem ég vil nefna er kannski nokkuð flókin. Hún var fyrst notuð af Doi árið 1962 varðandi ástand kóngskrabbastofnsins vestur af Kamchatka. (Hún er þó ekki alveg sjálfri sér samkvæm því gengið er út frá að þótt hlutfall eftirlifenda, S, sé stöðugt þá er áætlað að sóknin, F, sé breytileg). Ef nýliðun ákveðins stofns, R, og hlutfall eftir- lifenda, S, er áætlað stöðugt og fjöldi fiska í stofn- inum, N, er áætlaður Þá er fjöldi fiska í afla, C C = EN =-™ F + N (1-S)= ■ FR F + M (2) Par sem E er veiðidánarhlutfall, F fiskveiðidánar- stuðull og M er náttúrulegur dánarstuðull F = qf svo að _í_ = F_+_M _ _1_ f^—M_ (3) c qR R qR Þar sem q er veiðistuðull og f er sóknin. Líking (3) gefur til kynna að línulegt samband sé á f f milli -±- og f. Með því að setja út -L- á móti f getum við ákvarðað R og hlutfallið M á móti q. Niðurstöður þessar sýna minnkun nýliðunar í ýmsum tilfellum. Vísindafélög í Japan tengd fiskveiðum í Japan eru samtök sem nefnast „Félagið um vís- indalegar fiskveiðar", eru í þeim um 3.800 meðlimir. Félag þetta gefur út mánaðarrit er nefnist „Bulletin of the Japanese Society of Scientific Fisheries". Haldnir eru fundir vor og haust og eru þar kynnt mörg hundr- uð erindi um þetta efni. Auk þessa eru í Japan ýmis vísindafélög, varðandi fiskveiðar Japana svo sem japanska sjófræðafélagið, japanska fiskifræðifélagið, félög um fiskrækt, plöntu- og dýrasvif, fisksjúkdóma, samband fiskveiða og sjó- fræði, erfðafræðifélagið o.s.frv. Kennsla í fískifræði í Japan í Japan eru skólar í einstökum fylkjum, einka- skólar, ríkisskólar og háskólar, er veita kennslu í sambandi við fiskveiðar og fiskifræði. Fjöldi nemenda á menntaskólastigi er um átján þúsund. Háskólar og menntaskólar á þessu sviði eru þrettán talsins auk fjögurra einkaháskóla. Nemendafjöldi er samtals sex þúsund. Ég starfa sem prófessor í fiskifræði við háskólann í Tokyo og eru 75 ár síðan þessi kennsla var hafin. A minni deild eru sex rannsóknastofur: almenn líffræði fiska (þar sem ég kenni), sjávarlíffræði, lífefnafræði sjávar, lífefnafræði fiska, samband fiskveiða og ástands sjávar og loks fiskiðnaðarrannsóknir. Kennslu þessa veita sex prófessorar, sex aðstoðar- prófessorar, ásamt þrettán leiðbeinendum. Nem- endafjöldi er 40. í Japan er skólagöngu þannig háttað að barnaskóla- nám er sex ár, þrjú ár í gagnfræðaskóla og þrjú ár í menntaskóla. Háskólanám er yfirleitt fjögur ár, utan náms í læknisfræði og dýralækningum. Ég ætla nú að fara örfáum orðum um rannsóknir þær sem gerðar eru á minni deild. Rannsóknastofan um almenna líffræði fiska fæst m.a. við athuganir á stærð ýmissa fiskstofna. Aðal- viðfangsefni sjávarlíffræðirannsóknanna eru sjúk- dómar í fiskum. Efnafræði- og fiskifræðideildin beita sér einkum fyrir rannsóknum á eiturefnum í sjó og at- hugunum á próteinum og peptíðum í fiski. Lífeðlisfræðideildin vinnur aðallega að athugunum á áhrifum ljóss og hita á þroska fiska. Loks má nefna að athuganir á sambandi veiða og ástands sjávar beinast m.a. að framleiðslu fiskseiða og grundvallarrannsóknum varðandi fæðu handa fiskseiðum, m. a. með ræktun á einfrumungi er nefnist rotifer. Námið fer fram við sex ofangreindar rannsókna- stofur og auk þess við sex af fimmtán deildum haf- rannsóknastofnunar Tokyoháskóla, en þær eru eftir- 70-ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.