Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1984, Page 49

Ægir - 01.02.1984, Page 49
botnfiskaflaverðmæti þess á viðmiðunartímabil- inu. d) Leggja skal saman skerðingu skv. c-lið fyrir hverja botnfisktegund. Við skal bæta afla skipa í flokki 1, sbr. a-lið þessarar greinar. Peirri heildartölu, sem þannig fæst, skal skipta milli skipa í flokkum 7, 8 og 9, skv. a-lið þessarar greinar í hlutfalli við afla- magn þeirra af hverri tegund á viðmiðunartíma- bilinu, eftir lækkun skv. c-lið þessarar greinar. e) Heildaraflamarki hverrar botnfisktegundar 1984, skv. 1. gr., að frádregnu heildaraflamarki báta undir 10 brl., skv. 5. gr., skal skipt milli skipa í flokkum 2 til 9 skv. a-lið þessarar greinar í hlutfalli við aflamagn af hverri tegund, leiðrétt skv. d-lið, þó skal skipta helmingi heildaraflamarks fyrir skarkola eftir þorskaflamagni skv. d-lið þessarar greinar milli skipa í flokkum 7, 8 og 9. 7. gr. Aflamark hvers skips fyrir hverja botnfisktegund er fundið með því að reikna því sama hlutfal! úr afla- oiarki flokksins, sem það hefur skv. e-lið 6. gr., en þannig reiknað að við afla hvers skips skv. e-lið 6. gr., skal bæta þeim afla, sem ætla má að það hefði haft þann tíma, sem það kann að hafa tafist frá veiðum. Það telj ast frátafir frá veiðum í þessu sambandi ef þær hafa hverju sinni varað lengur en tvær vikur samfleytt °g hafi hlotist af meiri háttar bilun eða endurbótum á skipum, sem staðfest er af tryggingafélagi, viðgerða- verkstæði eða af öðrum til þess bærum aðila. Einnig skal leiðrétta úthaldsskýrslu vegna sjómannaverk- fallsins í ársbyrjun 1982. 8. gr. Frátafir frá veiðum á viðmiðunartímabilinu 1. nóv- ember 1980 til 31. október 1983, skv. 7. gr., skulu wetnar á grundvelli upplýsinga frá útvegsmönnum, sem borist hafa sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 20. janúar 1984, sbr. auglýsingar ráðuneytisins 21. des- ember 1983 og 10. janúar 1984. Samráðsnefnd skv. gr. skal fjalla um mat á frátöfum frá veiðum, og rn-a. í því sambandi um flokkun skipa skv. a-lið 6. gr. 9. gr. Hverju skipi skal ætla afla í frátöfum skv. 7. gr. ^eð áætluðum meðalafla á úthaldsdag. Meðalafli Þessi skal áætlaður þannig, að fundinn er meðalafli á uthaldsdag, skv. skýrslum Fiskifélags íslands, í við- komandi stærðarflokki skipa, með sams konar veið- arfæri, í sama mánuði og á sama veiðisvæði þann tíma, sem skipið var frá veiðum. Þenna meðalafla skal hækka eða lækka um það hlutfall, sem meðalafli viðkomandi skips vék frá meðalafla skipa í sama stærðarflokki, með sams konar veiðarfæri, á sama svæði, tímann, sem það var að veiðum á tímabilinu 1. nóvember 1980 til 31. október 1983. Stærðarflokkar teljast í þessu sambandi: 1. Bátar 10-20 brl. 2. Bátar 21-50 brl. 3. Bátar 51-110 brl. 4. Bátar 111-200 brl. 5. Bátar 201-500 brl. 6. Bátar yfir 500 brl. 7. Togarar .... 201-500 brl. 8. Togarar .... yfir 500 brl. Þegar meðalaflamark er reiknað fyrir flokk 7, togarar 201-500 brl., skal það reiknað sérstaklega fyrir togara 39 metra og styttri annars vegar, og hins vegar fyrir togara lengri en 39 metrar, miðað við mestu lengd skipsins. Veiðisvæði markast í þessu skyni af verstöðinni, frá hverri skipinu er haldið til róðra, sem hér segir: Svæði 1: Frá Hornafirði suður um til Patreksfjarðar að báðum stöðum meðtöldum. Svæði 2: Svæðið norðan svæðis 1. Afli, sem siglt er með á erlendan markað á árinu 1984, eftir birtingu þessara reglna, skal reiknast með fjórðungs álagi, þegar metið er, hversu miklu af afla- marki skips er náð hverju sinni. í samræmi við þessa reglu skal við ákvörðun afla- marks hvers skips auka aflamark þess skv. 6. til 9. gr. sem svarar fjórðungi af hlut afla þess, sem siglt var með til sölu erlendis á viðmiðunartímabilinu 1. nóv- ember 1980 til 31. október 1983. Ákvörðun sóknarmarks - val 11. gr. Ný skip og skip, sem hafa verið skemur að veiðum á tímabilinu 1. nóvember 1980 til 31. október 1983 en 12 mánuði, geta valið um að fá aflamark reiknað á grundvelli meðalaflamagns í viðkomandi stærðar- flokki og veiðisvæði skv. 9. gr. eða fá sett sóknarmark í úthaldsdögum sem svarar 70% af meðalúthaldi skipa í viðkomandi stærðarflokki og veiðisvæði á hverju eftirgreindra tímabila: 1. janúar til 29. febrú- ar; 1. mars til 30. apríl; 1. maí til 31. ágúst; 1. septem- ber til 31. desember, skv. skýrslum Fiskifélags íslands á tímabilinu 1. nóvember 1980 til 31. október 1983. ÆGIR-97

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.