Ægir - 01.07.1984, Blaðsíða 32
verið unnin í höndum í landi, en nú er nær einvörð-
ungu notaður hiti til þess að fá skelina til þess að opn-
ast og bitann að losna. Þegar bitanum er náð, eru inn-
yflin hreinsuð frá, oftast í vélum.
I mörgum löndum er mikið sóst eftir hrognasekkj-
um með bitunum, en lítið hefur verið framleitt af
þeim hér á landi. Hér er framleiddur fullhreinsaður
vöðvi að mestu leyti, en tilraunir hafa verið gerðar
með aðra framleiðslu.
Markaðsmál
Nær allur útflutningur íslands á hörpufisk hefur
farið til Bandaríkjanna og er markaðssvæðið nokkuð
dreift um landið. Hörpufisk má skipta í grófum drátt-
um í þrjá verðflokka. Dýrastur er sá stærsti (allt að 40
stk. í pundi.) Kanadamenn og Bandaríkjamenn veiða
mest af honum. Einnig er fluttur inn hörpufiskur frá
J apan í þessum stærðarflokki, en hann þykir ekki eins
góður.
Milliverðflokkur inniheldur hörpufisk sem oftast er
kallaður „Bay Scallop" (40-110 stk. í pundi). „Cape
Cod Bay Scallop" er þó undantekning og telst frekar
til hæsta verðflokks, enda almennt talinn sá besti.
íslenski hörpufiskurinn er í þessum flokki ásamt nán-
ast öllum öðrum innfluttum hörpufiski, (Bretland,
Færeyjar, Ástralía, Nýja Sjáland, Brasilía, Argen-
tína, Mexíkó og Perú).
Lægsta verð fæst fyrir „Calico Scallop“. (200 stk. og
fleiri í pundi).
Aðgreiningin er þó ekki alltaf svona skörp. Alhr
flokkarnir hafa nokkur áhrif hver á annan. Aðgrein-
ingin er t.d. lítil á rnilli lægri flokkanna og oft mikið bil
í stærsta flokkinn.
Hörpufiskur er seldur sem stöðluð vara og er þvl
eins og hálfgerður verðbréfamarkaður með spákaup-
mennsku og því sem henni fylgir. Sveiflur geta verið
mjög miklar. Þessar sveiflur koma sér mjög illa fyrir
framleiðendur og aðra sem nálægt þessu koma.
Stærðartakmarkanir voru settar í Bandaríkjunum
á veiðum á St. Georgsbankanum fyrir tveim árum-
Kanadamenn gerðu það sama stuttu síðar, vegna
hræðslu við ofveiði. Petta varð til þess að framboð
minnkaði og verð fór hækkandi á síðasta ári. Verðið
náði hámarki, fólk hætti að kaupa og verðið féH-
Verðið hefur fallið mikið, m.a. vegna þess að mikið
hefur verið flutt inn frá Perú á lágu verði.
Framtíðin er því frekar óviss, þó menn voni að verð
fari hækkandi, þá bendir ekkert til þess á þessaO
stundu.
AUKIÐ ÖRYGGIIVIGTUN
Með Póls vogakerfi næst
margfalt jafnari vigtun auk eftirlits.
Jafnari vigtun = öruggarí
vigtun = engin undirvigt.
MIKIL ARÐSEMI
Reynslan sýnir að vegna jafnari vigt-
unar, lækkar meðaivigtin. Póls-
vogakerfið sparar því geysilegar
fjárhæðir samfara AUKNU ÖRYGGI.
Á þennan hátt stunda nú fjölmörg
frystihús „fiskveiðar" með Póls-
vogakerfi. Þær vogir og vélar frá
Pólnum, sem nú eru í notkun í land-
inu, afla með þessum hætti á við
meðal skuttogara miðað við aflaverð-
mæti.
Póllinn h.f.
Aðalstræti 9,
Pósthólf 91
400 Isafjörður
Sími (94)3092
Það er þetta sem við köllum: FISKVEIÐAR Á ÞURRU LANDI, VEIÐAR ÁN SJÓFERÐAR.