Ægir - 01.07.1984, Blaðsíða 36
Að svo mæltu afhenti Arnór skólastjóra kr. 25.000,
sem renna munu í Sögusjóð skólans, sem hefur nú bæst
verulega í, svo að myndarlega verði hægt að minnast
Stýrimannaskólans á 100 ára afmæli hans árið 1991.
Skólastjóri kvaddi svo nemendur skólans sérstak-
lega með eftirfarandi ávarpi:
Með nokkrum orðum vil ég að lokum kveðja ykkur
nemendur sérstaklega. Um leið og ég endurtek ham-
ingjuóskir mínar og okkar allra til ykkar með próf-
skírteini það sem þið hafið fengið í hendur vil ég
minna ykkur á, að jafnframt því sem þetta prófskír-
teini veitir ykkur réttindi til ábyrgðarstarfa á ís-
lenskum skipum þá leggur það einnig á herðar ykkar
skyldur. Pið munuð fá ábyrgð á skipi og mönnum og
þess ber ykkur að gæta og hafa ætíð í huga. Tíð og
geigvænleg sjóslys hér við íslandsstrendur á liðnum
vetri eru öllum í fersku minni og okkur áminning um
hver ábyrgð fylgir starfi ykkar.
Ég og við kennarar vonum, að það sem þið hafið
hér lært verði ykkur gott veganesti og undirstaða til að
þjálfa ykkur og þroska og gera ykkur að góðum sjó-
mönnum, sem er mikið sæmdarheiti. Hér í hópi
okkar í dag eru menn sem hafa siglt bæði hér við land
og til nágrannalanda og voru sumir þeirra um og yfir
hálfa öld á sjónum. Meðal okkar er gamall nemandi
þessa skóla, sem sigldi í fyrri heimsstyrjöldinni, þegar
keisari réði yfir Þýskalandi og lenti í því mikla mann-
skaðaveðri - Halaveðrinu 7. febrúar 1925.
Allir sjómenn sem hafa siglt svo lengi búa yfir
mikilli reynslu og menntun starfsins, sem við getum
ekki kennt ykkur, aðeins lífið sjálft og starf ykkar
mun kenna ykkur þau sannindi, vegna þess að sann-
leikurinn er ekki til í bókum ekki einu sinni í góðufli
bókum segir einhvers staðar, heldur finnst hann í Ö'
inu sjálfu.
Þessir menn voru ekki aldir upp við þau tæki, sem
við höfum í skipum í dag, ratsjár, sjálfstýringu, lóra11
og fleira sem nú þykir og er ómissandi, samt stýrðu
þeir skipi sínu heilu í höfn eftir tugi áraá hafinu. Hir>n
harði skóli lífs og reynslu kenndi þeim að taka mið :1*
sjólagi og fugli, - þroska sitt sj ötta skilningarvit, slá H
báru sérhvern sjó og sýna ætíð fyllstu aðgát, þó að oft
yrði að sigla djarft, þegar stærði sjó í óblíðri veðr-
áttu.
Sumir ykkar halda hér áfram námi í haust og
áformað er að halda 4. stig, ef fæst þátttaka 10 manrta-
Nú um stund hefur syrt í álinn hjá okkur íslend-
ingum og óvissa ríkir í sjávarútvegi og siglingu111
okkar. Þetta veldur m.a. minnkandi aðsókn að skip'
stjórnarnáminu. Orsakir vandans eru margvíslegar'
Sumt er af völdum móður náttúru, aflasamdráttur og
þá sérstaklega versnandi skilyrði í sjónum undanfar1'1
ár, sem menn gera sér vonir um að fari batnandi-
annað er af mannavöldum. Erlend leiguskip sigH
ómælt til landsins og nú vofir yfir að Ameríkuj
siglingar sem hafa verið í höndum landsmanna fan u
hendur erlends skipafélags. Þetta minnir á bernsku:,r
Eimskipafélags Islands, sem var stofnað á útskrittar
ári elsta prófsveins þessa skóla, sem er hér mættur1
dag. Þá ætluðu erlend skipafélög að kæfa það góð*1
félag í fæðingu. Þá brugðust íslendingar hart við °g
sýndu það sem því miður sést of sjaldan: þeir stóðu
saman sem einhuga þj óð - siglingar okkar döfnuðu °§
þjóðarhagur um leið. Hið sama þyrfti að gerast í dag-
efling siglinga og sjávarútvegs, þá mun dafna hagur
landsins barna og koma betri tíð með blóm í hagJ-
Verðum við ekki að vona að svo verði. Það er meo*1
að
annars ósk mín til ykkar nýútskrifaðir stýrimenn. a
framtíð ykkar í því ævistarfi, sem þið hafið val*
ykkur megi verða sem björtust.
Ég og við kennarar ykkar biðjum ykkur alls góð5’
Megi sá Guð, sem öllu ræður fylgja ykkur á sjó
landi. Megi þið ávallt sigla skipi ykkar heilu í höfr>-
Ég þakka ykkur samveruna í vetur. Öllum V1
stöddum þakka ég komuna. Ég segi Stýrimannasko
anum í Reykjavík slitið í 93. sinn.
Að loknum kveðjuorðum skólastjóra var gestu111
boðið upp á kaffi og veitingar, sem félagskonur kvi-11
félags Öldunnar sáu um að venju með rausn og mynU
arskap.
Skólaslit Stýrimannaskólans eru alltaf hátíðHr
stund, bæði nemendum og kennurum, sem hvo
364 - ÆGIR