Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1984, Side 34

Ægir - 01.07.1984, Side 34
Skólaslit Stýrímannaskóians í Reykjavík 1984 Stýrimannaskólanum í Reykjavík var slitið í 93. sinn laugardaginn 19. maí s.l. við hátíðlega athöfn. Athöfnin hófst með því að Anna Dóra Benedikts- dóttir spilaði Vikivaka eftir Sveinbjörn Sveinbjörns- son. í skólaslitaræðu rakti Guðjón Ármann Eyjólfs- son skólastjóri skólastarfið á liðnu skólaári: Frá Stýri- mannaskólanum luku samtals 84 nemendur skip- stjórnarprófum á skólaárinu; 5 nemendur luku bæði 1. og 2. stigi í hraðdeild skólans. Eftir stigum voru lok prófa þannig: Skipstjórnarprófi 1. stigs luku 45 nemendur, þar af 9 nemendur í samvinnu við Dalvíkurskóla. Skip- stjórnarprófi 2. stigs luku 28 nemendur. Skipstjórnar- prófi 3. stigs - farmannaprófi - luku 16. Vegna ónógrar þátttöku var 4. stig ekki haldið. Skólinn starf- aði eins og undanfarin ár í tveimur önnum. Haustönn hefst 1. september og stendur til jóla. Vorönn er frá janúarbyrjun til aprílloka fyrir 1. stig, en prófum lauk 16. maí á 2. og 3. stigi. Hæstu einkunn við skipstjórnarpróf 1. stigs á haust- önn hlaut Árni Beinteinn Erlingsson, 9,04, sem er ágætiseinkunn. Á vorprófum hlutu hæstu einkunnir á skipstjórnarprófi 1. stigs: Albert Gunnlaugsson við Dalvíkurskóla 9,41, ágætiseinkun; Jens Kristján Kristinsson Dalvíkurskóla 9,22, ágætiseinkun; Har- aldur Haraldsson Reykjavík 8,66,1. einkunn. Nemendur við Dalvíkurskóla taka sömu próf og nemendur við skólann í Reykjavík í öllum prófum hinna svonefndu sjómannafræða þ.e. siglingafræði, siglingareglum, skipagerð og sjómennsku, eldvörn- um. Skólastjóri Dalvíkurskóla er Trausti Porsteins- son, en siglingafræðikennari deildarinnar undanfarin þrjú ár, sem deildin hefur starfað, hefur verið Júlíus Kristj ánsson forstj óri. Prófdómari þar nyrðra er Þórir Stefánsson fyrrv. skipstjóri skipaður af menntamála- ráðuneytinu. Samstarf við Stýrimannaskólann hefur verið með miklum ágætum og nemendur hafa á hverju ári komið suður eina viku á tækjanámskeið. Á skipstjórnarprófi 2. stigs voru hæstir og jafnir: Albert Haraldsson Patreksfirði og Tryggvi Örn Harð- arson Keflavík með 8,60. Þeir fengu sem verðlaun fyrir ágæta frammistöðu Öldubikarinn, farandbikar, sem Sjómannadagsráð gaf til verðlauna í tilefni af 70 ára afmæli Öldunnar 1964 og fá þeir hann til varð- veislu hálft árið hvor. Til eignar fengu þeir verðlauna- peninga áletraða frá Sjómannadagsráði. Hæstu einkunn í siglingafræði á 2. stigi hafði Albed Haraldsson 47 stig og fékk hann mjög glæsileg verð- laun frá LÍÚ - loftvog og klukku, sem LÍÚ veitir a hverju ári fyrir hæstu einkunn í siglingafræði á 2. stig1- Verðlaun úr verðlaunasjóði Guðmundar Kristjáns- sonar fyrrverandi kennara við Stýrimannaskólann tij margra ára eru veitt á 4. stigi og voru því ekki veitt i ár eða fyrra. Hæstu einkunn á farmannaprófi 3. stigs hlaut Hja^1 Elíasson Vestmannaeyjum 9,20, sem er ágætiseink' unn. Hjalti fékk í verðlaun FarmannabikarEimskip3' félags íslands, sem eru farandverðlaun, og glæsilega11 verðlaunapening með merki Eimskipafélagsins- Nemendur með hæstu einkunnir á hverju stigi við skólann hér í Reykjavík fengu verðlaun úr Verðlauna' sjóði Páls Halldórssonar fyrrv. skólastjóra fyrir góða frammistöðu og árangur. Útvegsmannafélag Norðurlands og SkipstjórafélaS Norðlendinga hafa með myndarskap staðið við bakið á skipstjórnardeildinni á Dalvík og veittu þeir hæstn nemendum þar verðlaun. Dalvíkurskóli verðlaunað' einnig nemendur sína með bókaverðlaunum. Fyrir ágætar ritgerðir og námsárangur í íslensku voru eftirtöldum nemendum veitt bókaverðlaun ífa skólanum: Á 2. stigi: Sigurbjörn Ólason 2. B og Sævar Ólafs' son (1 + 2); á 3. stigi: Hjalti Elíasson 3. B. Skólinn veitti viðurkenningu fyrir góða ástundm1 og stundvísi og hlutu eftirtaldir nemendur þau verð' laun: 1. stigi: Ólafur G. Óskarsson Selfossi og Árman11 Einarsson Þorlákshöfn. 2. stigi: Sævar Ólafsson Sandgerði. 3. Stigi: Björgvin Sigurðsson Hafnarfifð'- Danska sendiráðið veitti verðlaun fyrir hæstu eink unnir og góða frammistöðu í dönsku á brott fararprófi; hlutu þau Björn Jóhannesson á 3. stigi og Sigurbjörn Ólason og Tryggvi Örn Harðarson a ' stigi. 362-ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.