Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1985, Page 19

Ægir - 01.01.1985, Page 19
sði stofninn mikið framundir 970 og hélt raunar áfram að NTinnka unssíldveiðarvoru bann- aðar 1977. Enda þóttdraga megi Pa ályktun af þessu að Norður- sjávarsíldinni hafi ekki farið að nigna fyrr en seint á 7. áratugn- nrn hafa ýmsir fiskifræðingar (Cushing og Burd 1957, Cushing 1959 og Burd 1978) sýnt fram á ÍV síldinni í sunnanverðum orðursjó fór að hraka mun fyrr, eöa fljótlega upp úr 1950. um og eftir 1970 tókst síldar- vnnunefnd Alþjóðahafrann- soknaráðsins að fylgjast allvel með því hvernig stofninum nignaði. Við þessa stofnstærðar- ofmikninga voru notuð gögn úr at a veiðiskipa svo og aldurs/ at aaðferð. Þessir útreikningar yggðust einnig mjög svo á upp- ysmgum um nýliðun sem feng- Ust ór rannsóknaleiðöngrum á ongsíld sem skipulagðir voru \ r ^^Þjóðahafrannsóknaráðinu. 'öurstöður þessara leiðangra ha u góða vísbendingu um stærð árganga, þ.e.a.s. þegar síldin var á 2. aldursári. Fiskveiðidánarstuðlar fullorð- innar Norðursjávarsíldar hækk- uðu mjög 1965 og voru um 0.7 þangað til 1967. Þetta er sýnt á 7. mynd. Á tímabilinu 1968-1977 voru fiskveiðidánarstuðlarnir u.þ.b. 1.0. Þegar síldveiðibannið tók gildi 1977 lækkuðu fiskveiði- dánarstuðlarnir að sjálfsögðu og s.l. 3 ár hafa þeir verið um 0.2. Eftir að síldveiðibannið tók gildi 1977 var að sjálfsögðu ekki unnt að nota gögn frá veiðunum til að reikna stærðsíldarstofnsins. I stað þess varð að nota gögn úr rannsóknaleiðöngrum. Hér er um að ræða upplýsingar sem fengist hafa í hinum alþjóðlegu ungsíldarrannsóknum í Norður- sjó, svo og alþjóðlegum rann- sóknum á mergð síldarlirfa. Niðurstöður þessara rannsókna bentu til þess að nýliðun hafi verið mjög léleg á tímabilinu 1974-1979 en á árunum 1980- 1982 breyttist þetta mjög til batn- aðar. Meðalnýliðun í 'þessum stofni á árabilinu 1951-1970 var um 8 milljarðar sílda á 1. ári. Ár- gangarnirfrá 1980 og 1981 virð- ast vera um 150-180% stærri en þetta meðaltal. Þannig virðist nú tímabil lélegrar nýliðunar í Norðursjávarsíld heyra fortíðinni til. Hin síðari ár hefur einkum verið reynt að fylgjast með breyt- ingum á hrygningarstofni Norðursjávarsíldar með því að athuga breytingar á mergð nýklakinna síldarlirfa. Þar sem þessar lirfurannsóknir hafa gefið mjög misjafna raun svo ekki sé meira sagt hafa bergmálsmæling- ar skipað stöðugt hærri sess í rannsóknum á stærð Norðursjáv- arsíldarinnar. í norðanverðum Norðursjó, þ.e.a.s. á Hjaltlands —Orkneyjasvæðinu, hafa berg- málsmælingarnar einkum verið gerðar í ágúst rétt áður en síldin safnast saman á hrygningarstöðv- arnar. í mið Norðursjó hafa berg- málsmælingarnar verið gerðar á sjálfum hrygningarstöðvunum. Þetta hefur verið unnt vegna þess að fyrir liggur mjög náin þekking á hrygningarblettunum og hrygn- ingartímanum. Síldin hrygnir þarna nokkrum dögum áður en tungl verður fullt í síðara hluta ágústmánaðar og verður að taka tillit til þessa þegar mælingar eru gerðar. í sunnanverðum Norður- sjó er síldin mæld rétt áður en hún hrygnir og einnig skömmu eftir að hrygningu er lokið. Þessar bergmálsmælingar hafa þannig verið notaðar s.l. tvö ár á sama hátt og við höfum gert hér s.l. 12 ár til þess að meta stærð íslenska sumargotssíldarstofnsins og áhrif veiðanna á hann. 3. Stjórn síldveiðanna Bent hefur verið á (Burd, 1974) að veiðitakmarkanir sem Norð- austuratlantshafsfiskveiðinefndin ve/A/w1-^' ^ry8ningarstofn Norðursjávarsíldar 1960-1983 (heil lína) og fisk- ar>arstuðull (brotin lína). ÆGIR-7

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.