Ægir - 01.01.1985, Blaðsíða 37
ar- Fleiri dæmi úr frásögnum
bókarinnar mætti nefna, en hér
verður látið staðar numið að
sinni.
Óhætt er að fullyrða, að heim-
iIdagiIdi þessarar bókar er mikið.
Minni sögumanns er sýnilega
traust, og hann treystir það enn
betur með því að leita til fleiri
heimilda, þ. á m. dagbóka. Ber
Þó að hafa í huga, þótt það rýri á
engan hátt gildi frásagnarinnar,
a& vilaskuld koma hér öðru
fremur fram sjónarmið sögu-
manns sjálfs. Aðrir kunna eðli-
^ega að hafa litið atburði, sem frá
er sagt, öðrum augum.
Öll er bókin stórskemmtileg
aflestrar. Guðmundur Kjærne-
sted er sýnilega gæddur góðri
•rásagnargáfu. Hann segir vel og
l'Purlega frá, kastar aldrei rýrð á
aðra, sem getið er í sögunni, og
forðast allt oflæti og sjálfshól.
Sveinn Sæmundsson færir frá-
sögnina í letur á lifandi og
skemmtilegu máli. Hefur hann og
vafalítið notið góðrar þekkingar
a bæði sjómennsku og flugmál-
arr>- Síðast en ekki síst dregur
hann upp dágóða mynd af sögu-
manni sjálfum.
Ekki verður við þessa bók
skhist, án þess að frágangs
^ennar sé að nokkru getið. Hún
er prentuð á góðan pappír og
Prýdd allmörgum myndum, sem
góður fengur er að. Sá Ijóður er
'ns vegar á bókinni, að prófarkir
eru afar iIla lesnar og bókin fyrir
Pá sök morandi í prentvillum af
o lum stærðum og gerðum, auk
Pess sem samræmingar í stafsetn-
mgu hefur ekki verið gætt sem
skyldi.
Að öllu öðru leyti er þetta góð
ok, sem óhætt er að mæla með.
v° er bara að bíða eftir öðru
bindi.
Jón Þ. Þór.
ERT ÞU
KAUPANDI
ÚTVEGS ?
Vilt þú vita um afla
og aflaverðmæti allra
báta og togara á s.l. ári
Vilt þú vita hvað hvert
fiskvinnslufyrirtæki á
landinu tók á móti miklu
fiskmagni á s.l. ári svo og
aflaverðmæti þess fisks.
Vilt þú vita hve mikið
fiskmagn var unnið í
hverri verstöð landsins á
s.l. ári svo og s.l. 10 ár.
Allar þessar upplýsingar
auk fjölmargra annarra
er að finna í Útvegi '83.
Fiskifélag
íslands
Sími10500
Pósthólf 20-121 Reykajvík
ÆGIR-25