Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1985, Blaðsíða 59

Ægir - 01.01.1985, Blaðsíða 59
1 höfn ................................ 6% Vegna siglinga að og frá miðum . . . 57% Við leit og siglingu milli kasta o.fl. .. 31% Við beinar veiðar ..................... 6% Samkvæmt framangreindu er olíunotkun vegna s'8linga að og frá miðum 57%, en við það má bæta ákveðnum hluta í þættinum „leit, sigling milli kasta °-fl-''. Ef reiknað er með um helming (16-17%) af bessum þætti, fæst að um 73% af heildarolíunotkun- mni fara í beinar siglingar. Hlutdeild hjálparvéla- notkunar er um 11 % af heild og fæst því að um 65% olíunotkunarinnar fer í að knýja skipið áfram á beinni siglingu. Miðað við mældan mun með opin °g lokuð göng að framan gefa umrædd 2.9% minnkun í olíunotkun á siglingu um 1.9% heildar- minnkun á loðnuúthaldi. Ef reiknað er með 10.0001 loðnuafla yfir vertíð og olíunotkun 21 lítri á tonn afla (reynslutala) fæst heild- arolíunotkun sem er 210.000 lítrar. Framangreind f -9% minnkun þýðir um 4.000 lítra minnkun, sem miðað við núgildandi olíuverð er um 43 þús. kr. Ein- hver viðbót kæmi vegna annarra veiða, en Ijóst má vera að ávinningur virðist það lítill að hönnun og 'setning einhvers konar lokubúnaðar mundi ekki borga sig. Eins og getið var um hér að framan hefur umrætt skip tiltölulega háan mótstöðustuðul. Útreiknaður mótstöðuauki vegna hliðarskrúíuganga vegur því til- tölulega lítið í heildarmótstöðustuðli. Ætla má að fyrir skip, sem hefur lægri mótstöðustuðul, hafi mót- stöðuauki ganga meira vægi í heildarmótstöðustuðl- mum og gefi þar með hlutfallslega meiri olíu- sparnað. Hægt er að gera tilraun til að yfirfæra ornræddar mælingar yfir á annað skip, gengið út frá ákveðnum forsendum. Skip það sem verður fyrir valinu er Víkingur AK, e'1t af stærstu loðnuskipunum, en það skip hefur Verið mælt með tilliti til ganghraða og nýtni aflbún- aðar, og hefur tiltölulega lágan heildarmótstöðu- stuðul. Gengið er út frá þeirri forsendu að opin hliðar- skrútugöng að framan hafi sama mótstöðustuðul, Þ-e. 10JCT = 0.43, og mæling í Dagfara ÞH gaf til kynna, miðað við hraðastuðul á bilinu 0.87 - 1.00. ^ið samanburð á þessum tveimur skipum kemur í 'jós að þversnið hliðarskrúfuganga hefur hlutfalls- ^e8a sama flatarmál, þegar miðað er við skrokkflat- armál neðan sjólínu. Sambærilegt ganghraðasvið fyrir Víking AK er 12.8-14.8 hn (hraðastuðull á bilinu 0.87 — 1.00) og tilsvarandi mótstöðustuðull á bilinu 4.5 — 5.2. Sam- Mynd5: Dagfari ÞH íslipp milli mælinga, hleri brenndur úr. kvæmt útreikningum fæst, gengið út frá forsendum hér að framan og niðurstöðum aflnýtnimælinga í umræddu skipi, að mótstöðuauki yrði að meðaltali 9.6% vegna opinna ganga og tilsvarandi aukning í olíunotkun 6.6%. Samanburðurviðfasta olíunotkun gefur að opin göng minnki ganghraðann um 2.1 %, eða um 0.3 hn. Niðurstöðutölur gefa til kynna að í þessu tilviki eru áhrifin 2.3-falt meiri, þ.e. 6.6% aukning í olíunotk- un á siglingu miðað við 2.9% áður. Gert ráð fyrir að umrætt skip noti um 40% meiri olíu yfir vertíð (fastur loðnukvóti) yrði olíusparnaður í lítrum um 3.2-falt miðað við það sem áður fékkst, eða um 13 þúsund lítrar, sem miðað við núgildandi olíuverð er um 140 þús. kr. Þessi ávinningur næst á aðeins hluta úr ári, ca. fjórðungi, og með auknu úthaldi mundu tölurnar hækka. í tilviki sem þessu, ef tölurfást staðist, mundi hönnun og ísetning einhvers konar lokubúnaðar frekar koma til álita, skoðað út frá arðsemissjónar- miði. Tæknideild er kunnugt um að göngum hafi verið lokað „varanlega" í einu íslenzku fiskiskipi. Skip þetta er skuttogarinn Sölvi Bjarnason BA 65, og var það gert haustið 1982. Fremri göngunum var lokað með því að heilsjóða stálplötur í opendana báðum megin, slétt við byrðing, og rýmið fyllt af olíu. Skip- stjóri skipsins hefur upplýst að við þessa lokun hafi ekki orðið vart neinna breytinga í ganghraða, ekkert sem er merkjanlegt. Þegar þetta skip er haft í huga er það mjög eðlilegt að munur í ganghraða sé ekki merkjanlegur í rekstri, þar sem skipið hefur tiltölu- lega háan mótstöðustuðul líkt og Dagfari ÞH. Hlið- stæður ganghraðamissir og mældist í því skipi, gæfi vart meira en tæplega 1 /10 úr hnút í Sölva Bjarnasyni BA. ÆGIR-47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.