Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1985, Page 26

Ægir - 01.01.1985, Page 26
Fiskaflinn 1984 (Greinargerð) Endanlegar tölur fyrir árið 1984 munu ekki tiltækar fyrr en um 20. febrúar n.k. Hinsvegar er það spá starfsmanna Skýrsludeildar Fiskifélagsins að endan- legar tölur muni sýna, að heildaraflinn verði á bilinu 1.536.000 til 1.537.000 tonn árið 1984. 1. Heildaraflamagn Samkvæmt meðfylgjandi aflayfirliti Fiskifélags íslands, sýna bráðabirgðatölur, að heildarafli lands- manna verður 1.515.395 tonnáárinu 1984. Árið 1983 varð heildaraflinn 838.868 tonn og er þá miðað við endanlegar tölur. 2. Skrá um heildarafla 1965-1984. Að gefnu tilefni vill Fiskifélagið birta eftirfarandi skrá um heildarafla landsmannafráárinu 1965, en það er fyrsta árið er íslenskir fiskimenn afla meir en eina milljón tonna. Öll árin er miðað við endanlegar tölur, nema 1984, þar sem miðað er við bráðabirgðatölur. Skráin sýnir ótvírætt, að árið 1984, verður hvað heildaraflamagn snertir, a.m.k. þriðja mesta aflaár í fiskveiðisögu íslendinga. Heildarafli 1965-1984 Magn: þús. tonn Ar Botnfiskafli Síldarafli Loðnuafli Annarafli Heildarafli 1965 381.8 763.0 49.7 4.6 1.199.1 1966 339.4 770.3 124.9 8.0 1.243.0 1967 333.5 461.5 97.2 5.5 897.7 1968 337.0 142.8 78.2 7.4 601.4 1969 450.2 56.6 171.0 10.8 668.6 1970 474.2 51.4 191.8 16.3 733.7 1971 421.7 61.3 182.9 18.4 684.3 1972 385.7 41.5 277.0 21.7 726.0 1973 398.1 43.4 441.5 24.3 907.4 1974 422.2 40.5 462.2 19.5 944.4 1975 443.7 33.4 501.1 16.1 994.3 1976 475.8 30.0 458.8 21.1 985.7 1977 502.9 28.9 812.7 29.4 1.374.0 1978 513.6 37.3 966.7 48.6 1.566.2 1979 596.0 45.1 963.6 43.9 1.648.6 1980 628.3 53.3 760.1 66.8 1.514.2 1981 696.3 39.5 642.4 62.6 1.440.8 1982 689.7 56.5 13.2 29.1 788.5 1983 604.5 58.9 133.5 42.0 838.9 1984 551.5 50.3 865.1 48.5 1.515.4 3. Verðmæti aflans Brúttóaflaverðmæti, upp úr sjó, var árið 1983 6.191.005 þús. kr. Miðað við endanlegar tölur um verðmæti aflans 31. október s.l. mun brúttóverðmæti hans upp úr sjó hækka um að minnsta kosti 37% milli áranna 1983 og 1984. Tekjur af útflutningi sjávarafurða á öllu árinu 1984 liggja ekki fyrir, en 30. nóvember s.l. námu þær 14 milljörðum 820milljónum króna, sem þá var 70.9% af útflutningstekjum þjóðarinnar, samkvæmt skýrslum Hagstofu íslands. Fiskifélag íslands áætlaði verðmæti birgða sjávar- afurða í landinu 30. nóvembers.l. 5.7 milljarða króna. 14-ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.