Ægir - 01.01.1985, Page 33
°g sóknarmarki allra veiðiskipa frá 8. apríl 1985 í ij ósi álits
Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi fiskistofnanna.
VIII. KAFLI
Eftirlit. viðurlög o.fl.
23. gr.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur eftirlit með framkvæmd
pessara reglna og skulu eftirlitsmenn þess m.a. styðjast við
uPplýsingar frá Ríkismati sjávarafurða og skýrslur Fiskifé-
lags íslands, sbr. 11. og 14. gr. Útgerðarmönnum, skip-
stjórnarmönnum og fiskkaupendum er skylt að láta í té allar
uPplýsingar um afla af einstökum tegundum, um úthald og
sjosókn sem þörf er á vegna þessa eftirlits.
24. gr.
Hari fiskiskip fram úr aflamarki einnar fisktegundar skal
skerða aflamark þess á öðrum tegundum hlutfallslega, enda
séu þessi frávik samanlögð innan við 10% af verðmæti afla-
marks þess af öllum botnfisktegundum skv. reglum þessum
miðað við gildandi fiskverð, Framangreint 10% hámark af
verðmæti aflahámarks samkvæmt þessari grein gildir þó ekki
um tilfærslu á aflamarki frá þorski yfir á aðrar tegundir.
Fari afli skipsins fram úr þessu 10% marki, skal fara með
slík brot samkvæmt 26. gr., sbr. lög nr. 32 19. maí 1976 um
uPptöku ólöglegs sjávarafla. Sama gildir eigi skip ekki
ónotað aflamark til jöfnunar innan 10% marksins.
Hafi aflamark eða hluti þess verið flutt milli skipa sam-
kvæmt 20. gr. flyst heimild til 10% breytinga milli fiskteg-
unda hlutfallslega frá því skipi, sem aflamarkið er flutt frá,
yfir á það skip sem aflamarkið fær.
Skip, sem hafa almennt leyfi mcð sóknarmarki hafa ekki
heimild til breytinga samkvæmt 1. mgr. Fari þau skip yfir
þorskaflahámark samkvæmt 16. gr. eða stundi veiðar fram
yfir Ieyfilegan sóknardagafjölda á hverju tímabili, sbr. 15.
gr. varðar það sömu viðurlögum og samkvæmt 2. mgr.
25. gr.
Sjávarútvegsráðuneytið getursett nánari reglur um fram-
kvæmd reglugerðar þessarar. ef nauðsyn krefur.
26. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 1.
mgr. 18. gr. laga nr. 81 31.maí 1976, um veiðar í fiskveiði-
landhelgi íslands, sbr. 4. gr. laga nr. 118 31. desember 1984.
Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 81
31. maí 1976 um veiðar í fiskeiðilandhelgi íslands, sbr. lög
nr. 118 31. desember 1984, til þess að öðlast þegar gildi og
birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegsráduneytið, 8. janúar 1985.
Halldór Ásgrímsson.
Jón L. Arnalds.
FISKVERÐ
Hörðudiskur og rækja Nr. 2211984.
Með vísun til laga um breytingu á lögum um Verðlagsráð
sjávarú'vegsins, samþykkt á Alþingi þann 12. desember
1084, hefur yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins ákveðið
cftirfarandi lágmarksverð á hörpudiski og rækju frá 21. nóv-
ember 1984 til 31. ágúst 1985:
Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi:
a) 7 cm á hæð og yfir. hvert kg.................. kr. 12,00
) cm að 7 cm á hæð, hvert kg ...................... kr. 9,75
^erðið er miðað við að seljendur skili hörpudiski á flutn-
mgstæki \ ið hlið veiðiskips og skal hörpudiskurinn veginn á
.*°8 af löggiltum vigtarmanni'á vinnslustað og þess gætt að
sJor fylgj ekkj með
^ erðið miðast við gæða- og stærðarmat Ríkismats sjáv-
arafurða og fari gæða- og stærðarflokkun fram á vinnslustað:
Rækja, óskelflett í vinnsluhæfu ástandi:
a) 160 stk. og færri í kg, hvert kg.......... kr. 21,40
b) 161 til 220 stk. í kg, hvert kg........... kr. 18,40
c) 221 til 240 stk. í kg, hvert kg .......... kr. 16,70
d) 241 til 260 stk. í kg, hvert kg........... kr. 15,50
e) 261 til 290 stk. í kg, hvert kg........... kr. 14,60
f) 291 til 320 stk. í kg, hvert kg .......... kr. 12,60
g) 321 til 350 stk. í kg, hvert kg........... kr. 10,80
h) 351 stk. o.fl. í kg. hvert kg ........... kr. 6,00
Verðflokkun byggist á talningu Ríkismats sjávarafurða
eða trúnaöarmanns, sem tilnefndur er sameiginlega af kaup-
anda og seljanda.
Verðið er miðað við að seljandi skili rækju á flutningstæki
við hlið veiðiskips.
Verðið er uppsegjanlegt hvenær sem er eftir 1. apríl 1985
með minnst viku fyrirvara.
Reykjavík, 13. desember 1984.
Verölagsráð sjávarútvegsins.
ÆCIR-21