Ægir - 01.04.1986, Qupperneq 6
HÖFN í HORNAFIRÐI
»Hér er alltaf vertíð«
Eftir Sigurð Pétursson
Höfn í Hornafirði er meðal helstu útgerðarstaða á Suður- og Austur-
landi. Þaðan eru gerðir út á annan tug vélbáta og þar er unninn fjöl-
breyttari sjávarafli en víðast annars staðar hér á landi. Vetrarvertíðin
skilar ætíð miklum þorskafla. Snemma sumars hefst svo humar-
vertíðin. Síldveiðar eru einnig stundaðar seinni hluta sumars og
fram á haust, en þá fer loðnan að berast að landi og stendursú vertíð
fram í febrúar oftast nær. Þannig er alltaf vertíð á Höfn.
íbúar á Höfn eru nú 1517 og hefurfjölgað mjög mikiðsíðustu ára-
tugi, samfara eflingu sjávarútvegs á staðnum. Höfn á sér hins vegar
ekki langa sögu sem verslunar- og útgerðarbær, en upphaf kaupt-
únsins má rekja til eins ákveðins atburðar árið 1897. Hér á næstu
síðum munu verða raktir nokkrir helstu þættir í sögu og uppbygg-
ingu sjávarútvegs á Höfn, þar sem fram fer nú hin fjölbreyttasta
vinnsla á þeim gæðum sem hafið býður okkur íslendingum að hag-
nýta.
Talið er að breyting hafi áttse'
stað í ósnum einhvern tíman11
seint á 18. öld og í byrjun Þe'rr3i
nítjándu, svo að ósinn hafi verl
ófær skipum um það leyti. San1
kvæmt því var ósinn áður f>'rí
vestan við Hvanney, en sfðal1
mun hafa opnast ný rás að aud
anverðu. Framburður jökulánfa
hefur síðan fyllt að Hvanneý J
vestanverðu, og þannig er ósif11
nú.
Af þessum ástæðum fT1tJ
verslun trúlega hafa verið se
niður á Papósi eftir miðja síðuS
öld. Þó liðu ekki mörg ár þar ',
kaupskip reyndu aftur við ósin'1
Upphaf verslunar á Höfn
Upphaf kauptúns á Höfn í
Hornafirði má rekja til vorsins
1897 er verslunarstaður Austur-
SkaftfelIinga var fluttur frá Papósi
til Hafnar. Verslun hafði staðið
við Papós frá 1861, en fyrir þann
tíma var næsta verslun á Djúpa-
vogi.
Á fyrstu öldum byggðar í land-
inu voru siglingar tíðkaðar á
Hornafjörð, svo sem fram kemur
í nokkrum af fornsögunum. Þá
eru heimildir fyrir því að Þjóð-
verjar hafi verslað í Hornafirði á
sextándu öld. Með einokunar-
verslun Danaárið 1602 tókafalla
siglingu á Hornafjörð, og hefur
það áreiðanlega verið til nokkurs
baga fyrir íbúa í nærsveitum.
Nýja byggöin á Höfn. Fjallasýn sem á engan sinn líka.
194 -ÆGIR