Ægir - 01.04.1986, Blaðsíða 18
HÖFNIN
Hornafjarðarós er eina örugga
höfnin á öllu Suðausturlandi.
Innsiglingin og grynningar við
eyjarnar á firðinum hafa hins
vegar ætíð verið varhugaverðir
farartálmar sjófarendum til
Hafnar. Skipum hlekktist oftaren
einu sinni á við ósinn um alda-
mótin síðustu er hafskip tóku að
sigla á Hornafjörð að nýju, eftir
aldarlangt hlé. Árið 1908 varð
hins vegar óhapp sem átti eftir að
hafa mikil áhrifá allarsamgöngur
til Hafnar næstu áratugi. Þá
strandaði þar stranferðarskipið
Hólar á eyri við ósinn. Þetta varð
til þess að strandferðaskipum var
stranglega bannað að sigla inn á
Hornafjörð lengi á eftir. Varð þá
að flytja vörur til og frá Höfn á
smærri skipum um umskipunar-
hafnir á Austfjörðum, og síðar til
Reykjavík. Er óþarft að fjölyrða
um hversu mikið óhagræði þetta
hefur verið fyrir verslun og útgerð
á Höfn og framgang atvinnuvega
þar.
Viti var byggður á Hvanney við
Hornafjarðarós árið 1922. Ann-
ars voru engin hafnarmannvirki í
firðinum fram á fjórða tug aldar-
innar, utan viðlegubryggjur við
einstakar verstöðvar á Hafnarvík-
inni, í Mikley og Álögarey.
Það er svo uppúr 1930 sem
tekið er alvarlega að ræða um
hafnarbætur meðal Hafnarbúa.
Hafnarnefnd var skipuð af
hreppsfélagi og sýslunefnd árið
1935 og sett reglugerð um höfn-
ina. Það sama haust hófust svo
framkvæmdir við innsiglinguna,
sem síðan hafa staðið, að vísu
meðhléum, alltframáokkardag.
Innsigling á Höfn lá milli Mikl-
eyjar og Álögareyjar og inn Laen-
una, sem svo var kölluð; með'
fram Álögarey, milli hennar og
Standeyjarog inn með Heppunm
allt inn í Hafnarvíkina (sjá kort af
höfninni).
Fyrsta framkvæmdin var bygg'
ing straumvarnargarðs úr Heppu'
tanga og austur í Standey. Garð-
urinn var timburþil niðurrekið
með sverum styrktartrjám °S
boltuðum bitum á efri brún, svo
manngengt var eftir honum-
Garðurinn stóð enn óhaggaðurer
fyllt var upp í kringum hann á sjö-
unda og áttunda áratugnum.
Leirburður úr jökulánum sem
renna í Hornafjörð hefur verið
eilífðarvandamál Hornfirðinga }
sambandi við hafnarmálin. Á
stríðsárunum fóru fram athuganir
og mælingar á framburði Horna-
fjarðarfljóta og innsiglingunni 3
Höfn. Niðurstaðan varð sú að
besta ráðið væri að loka höfninm
að vestan með garði úr austan-
verðri Hafnarvíkinni og út 1
Ósland. Þannig myndi lokaðfyr,r
Q Hnlhilml
P/mt
\xrðtclitiirst/
gstanit/
^AIðgartyt.
BorgeyJ
SUÐURSTRÖND ISLANDS
HORNAFJÖRÐUR
Mœlikvarði 1= 15000 ó 65*n.br.
'Ó s
ðcrfi/iorlogl
þínganessktr
Hvanneý/BikW-Js/Tf
Einholtsklettar
206 -ÆGIR