Ægir - 01.04.1986, Blaðsíða 20
Útgerðin og „litlu
fiskarnir"
sem von er, en stjórnendur
félagsins, sem jafnframt eru
stjórnendur kaupfélagsins, álíta
togarann mjög mikilvægan til að
jafna hráefnisöflun til Fiskiðju-
versins aðra tíma ársins en yf'r
veturinn.
Á Höfn hefur ríkt nokkuð skýr
verkaskipting milli útgerðar og
fiskvinnslu, allt frá því sjávarút-
vegurtókað byggjastuppá Höfn.
Áður fyrr voru aðkomubátar ríkj-
andi í útgerðinni, en þó voru alltaf
nokkrir bátar gerðir út í eigu
Hornfirðinga. Eigendur stærstu
verstöðva og fiskverkunarstöðva,
Þórhallur Daníelsson og síðar
Kaupfélag Austur-Skaftfellingaog
Fiskimjölsverksmiðja Hornafjarð-
ar, hafa verið lítt áberandi í
útgerðarmálum, þó svo þær hafi
ekki látið þau afskiptalaus með
öllu.
Einkaeign á bátunum
Bátaútgerðin er í höndum ein-
staklinga, oftast þannig að tveir
eða þrír aðilar eiga í félagi saman
einn bát, einstaka sinnum tvo.
Hlutafélagaformið er ríkjandi, og
eru þá fjölskyldumeðlimir aðal-
eigenda skrifaðir með í fyrirtæk-
ið. Þetta form mun öllum vera
kunnugt, svo algengt sem það er
í útgerð og á fleiri sviðum. Yfir-
leitt eru skipstjórarnir meðeig-
endur skipa sinna ásamt öðrum
sem vinna við útgerðina í landi og
ef til vill þriðja aðila sem gæti
verið vélstjórinn á bátnum.
Þannig mun því vera varið með
Sigurð Ólafsson SF 44.
Eskey er eitt þriggja félaga sem
á tvo báta, þar leggja saman tveir
skipstjórar og einn í landi. Sama
er að segja um Skinney þar sem
eigendur eru skipstjórarnir tveir
ogfaðirannars þeirra, sem sér um
bókhald og reddingar.
Borgey h.f.
Flestar útgerðirnar eiga einn
bát. Undantekning frá þessari
reglu er Borgey h.f., þar sem
Kaupfélagið á tvo þriðju hluta-
fjár, en einstaklingar einn fjórða.
Borgey var stofnuð 1946 til að fá
á staðinn einn Svíþjóðarbátanna
sem hingað komu á nýsköpunar-
árunum. Nú á Borgey tvo báta
Hvanney 101 brl. og Lyngey 92
brl., og þess utan eina skuttogara
Hafnarbúa, Þórhall Daníelsson
SF 71, 299 brúttólestir að stærð.
Hann var byggður í Noregi 1975,
en var keyptur til Hafnar í nóvem-
ber árið 1984. Þórhallur var á
sóknarkvóta ífyrra og aflaði 2700
tonn. í janúar á þessu ári varð
hann hins vegar fyrir tjóni í höfn-
inni á Höfn og hefur síðan verið
til viðgerðar allt fram á þennan
dag, en kemst von bráðar í
gagnið. Reksturinnernokkuðerf-
iður á svona nýfengnu skipi, svo
Skinney
Raunaráttu Hornfirðingareinn
skuttogara áður. Það var Skinriey
h.f. sem keypti nýjan togara fra
Noregi árið 1975. Skinney er
í eigu skipstjóranna IngólÞ
Ásgrímssonar og Birgis Sigurðs-
sonar, auk Ásgríms HalldórS'
sonar fyrrverandi kaupfélagS'
stjóra. Togarinn sem nefndur var
Skinney, var 46 metra langur og
299 brl. að stærð. Þegar togarinn
var keyptur var einmitt að rísa hiö
nýja Fiskiðjuver KASK, og þóltl
því nauðsyn á að tryggja hráefn1
til fullkomnari og stærri vinns^
en áður þekktist hér. Útgerðarfé'
lagið stóð hins vegar ekki eitl
undir rekstri svo mikillar fjárfest'
ingar, og þegar ekki reyndis1
skilningur eða vilji hjá öðruni
aðilum á staðnum til að halda
togaranum í byggðinni var eina
leiðin að seljá hann haustiö
1977. Segja má að Hornfirðingar
Flotinn kemur að landi meö kvoldinu.
208 -ÆGIR