Ægir - 01.04.1986, Side 25
Tlskvinnslunni, vélasalurinn vel búinn, skilar hráefninu ísnyrtinguna...
sem konurnar taka við.
Humarinn
I lok maí hefst svo humarver-
tíðin, þá er mikið um skólafólk í
vinnu hjá KASK og margir ná upp
ágætis sumarþénustu. Humarinn
er flokkaður og frystur og seldur
á markað í Evrópu og Bandaríkj-
unum. Humarvertíðinni lýkur um
mánaðamótin júlí/ágúst. í fyrra-
sumar var unnið úr 214 tonnum
af humri. Þó mest áhersla sé lögð
á humarvinnsluna á sumrin, þá
má ekki gleyma því að mikið af
öðrum fiski kemur með í aflan-
um, og er hann frystur.
Síldin
I september hefjast svo síld-
veiðar, en hluti síldarinnar er
alltaf frystur, fyrir utan það sem
saltað er. Síldin er þá stærða-
flokkuð í sérstökum vélum,
flökuð og fryst. Síldarvertíðin
stendur oft fram í desember. Þeir
bátar sem ekki fara á humar eða
síld, hafa nú síðustu ár leitað fyrir
sér með rækjuveiðar við Aust-
firði, fyrst og fremst á Bakkaflóa-
dýpi. Hefur fengist þar ágæt
rækja. Til þessarar vinnslu hefur
verið sett upp vél til skelflettingar
rækju og var unnið í henni á síð-
asta ári frá því um mitt sumar og
fram í nóvember. Alls bárust 452
tonn til vinnslu á árinu.
l ^a st*rra. Þó mun einhverjum
a þótt nóg um á sínum síma.
er^ T e^ki fullreist, því enn
þyrjað á saltfiskgeymslun-
h | ,Sern teiknaðar voru í fram-
af núverandi saltfiskvinnslu.
ertl'ðaraflinn
. ^að er vertíð allt árið hjá þeim
f ASK. Vetrarvertíðin stendur
Hnúar og fram í maí. Þorsk-
gangan vestur með landinu sér til
þess að mið Hornfirðinga eru yfir-
leitt gjöful. Fimmta mars síðast-
liðinn höfðu 3.373 tonn verið
lögð upp hjá KASK, á móti 1.186
tonnum í fyrra. Tíðarfar og afla-
brögð hafa ekki verið til að kvarta
yfir í vetur. Á síðasta ári var unnið
úr 18 þúsund tonnum af botnfiski
í Fiskiðjuverinu. 8.600 tonn fóru
í frystingu, 6.100 tonn í salt og
400 tonn í skreið.
Lobna
Hringnum lokar svo loðnan,
sem berst í nóvember eða des-
ember og fram í janúar eða
febrúar, allt eftir ástandi og stað-
arákvörðun hennar. Það eru
loðnuhrognin sem eru fryst og
kaupa Japanir framleiðsluna. Á
síðustu árum hafa loðnuhrogn
verið unnin á Höfn nema núna
síðustu vertíð, er ekkert var fryst.
Þorskhrogn eru svo unnin á
vetrarvertíðinni.
ÆCIR - 213