Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1986, Page 25

Ægir - 01.04.1986, Page 25
Tlskvinnslunni, vélasalurinn vel búinn, skilar hráefninu ísnyrtinguna... sem konurnar taka við. Humarinn I lok maí hefst svo humarver- tíðin, þá er mikið um skólafólk í vinnu hjá KASK og margir ná upp ágætis sumarþénustu. Humarinn er flokkaður og frystur og seldur á markað í Evrópu og Bandaríkj- unum. Humarvertíðinni lýkur um mánaðamótin júlí/ágúst. í fyrra- sumar var unnið úr 214 tonnum af humri. Þó mest áhersla sé lögð á humarvinnsluna á sumrin, þá má ekki gleyma því að mikið af öðrum fiski kemur með í aflan- um, og er hann frystur. Síldin I september hefjast svo síld- veiðar, en hluti síldarinnar er alltaf frystur, fyrir utan það sem saltað er. Síldin er þá stærða- flokkuð í sérstökum vélum, flökuð og fryst. Síldarvertíðin stendur oft fram í desember. Þeir bátar sem ekki fara á humar eða síld, hafa nú síðustu ár leitað fyrir sér með rækjuveiðar við Aust- firði, fyrst og fremst á Bakkaflóa- dýpi. Hefur fengist þar ágæt rækja. Til þessarar vinnslu hefur verið sett upp vél til skelflettingar rækju og var unnið í henni á síð- asta ári frá því um mitt sumar og fram í nóvember. Alls bárust 452 tonn til vinnslu á árinu. l ^a st*rra. Þó mun einhverjum a þótt nóg um á sínum síma. er^ T e^ki fullreist, því enn þyrjað á saltfiskgeymslun- h | ,Sern teiknaðar voru í fram- af núverandi saltfiskvinnslu. ertl'ðaraflinn . ^að er vertíð allt árið hjá þeim f ASK. Vetrarvertíðin stendur Hnúar og fram í maí. Þorsk- gangan vestur með landinu sér til þess að mið Hornfirðinga eru yfir- leitt gjöful. Fimmta mars síðast- liðinn höfðu 3.373 tonn verið lögð upp hjá KASK, á móti 1.186 tonnum í fyrra. Tíðarfar og afla- brögð hafa ekki verið til að kvarta yfir í vetur. Á síðasta ári var unnið úr 18 þúsund tonnum af botnfiski í Fiskiðjuverinu. 8.600 tonn fóru í frystingu, 6.100 tonn í salt og 400 tonn í skreið. Lobna Hringnum lokar svo loðnan, sem berst í nóvember eða des- ember og fram í janúar eða febrúar, allt eftir ástandi og stað- arákvörðun hennar. Það eru loðnuhrognin sem eru fryst og kaupa Japanir framleiðsluna. Á síðustu árum hafa loðnuhrogn verið unnin á Höfn nema núna síðustu vertíð, er ekkert var fryst. Þorskhrogn eru svo unnin á vetrarvertíðinni. ÆCIR - 213

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.