Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1986, Side 32

Ægir - 01.04.1986, Side 32
Það er unnið allt árið við marineringu og kryddsíld. Kryddsíldin frá Höfn er lostæti vegar var aðeins saltað í 14.244 tunnur á síðasta hausti. Þótti mönnum það heldur lítið þar austur frá. Pegar mest var saltað árin 1977-79 var saltað í 25-31 þúsund tunnur á ári. Síðastliðið haust gerði suðvestan rok í 3—4 daga meðan á vertíðinni stóð og lokaðist þá höfnin, munaði það því að ekki náðust þær 20 þúsund tunnur sem búist var við. Tveir heimabátar voru í föstum viðskiptum á síldinni í haust, Skógey og Steinunn, en einnig lönduðu tveir nótabátar hjá stöð- inni, annar úr Vogum, hinn úr Stykkishólmi. Annars landa rek- netabátarnir bara þar sem styst er í land, og var síldin of austarlega til að Hornafjörður væri í leiðinni á síðustu vertíð. Þannig heldur síldarsöltunin áfram að vera hverfull atvinnuvegur, þar sem stutt er á milli gnægta og skorts. Starfsmenn söltunarstöðvar- innar eru 7-9 allt árið, en allt að 100 þegar mest er. Síldarsöltun stendur yfirleitt ekki nema tvo mánuði, frá byrjun október og fram til mánaðarmóta nóvember/ desember. Síðasta vertíð var óvenju stutt frá 10. október- 2. nóvember. Hver bátur fær út- hlutaðákveðnum kvóta, ogþegar vel gengur að fylla hann styttist vertíðin til bagafyrirmargarverk- unarstöðvar. íslenska síldin, söltuð og mar- ineruð er aðallega seld til Rússlands, Svíþjóðar og Finn- lands. Markaðurinn er mjög þröngur og erfitt að halda uppi verðinu, ekki síst þar sem íslenska síldin er seld hærra verði erlendis en síld frá öðrum löndum. Hér er um mjög við- kvæma vinnslu að ræða og fram- tíðin öll mjög óviss. Síldarsöltunin er hins vegar mjög mikilvæg fyrir Hornfirð- inga, fyrirtækin, útgerðina, bæjarfélagið og fólkið. Bátarnir eru nær allir á síld á haustin, fólk getur haft gott upp úr síldinni, þó vertíðin sé stutt, og útflutnings- verðmæti síldarafurða frá Höfn nam tæpum eitt hundrað milljón- um á síðasta ári. Þær skiptast þannig á fyrirtækin: Saltsíld hjá F.H. 45 milM- Saltsíld hjá Stemmu 18 miMj- Fryst sfldarflök KASK 25 millj- + úrgangur í mjöl og lýsi. Úr síldarsöltunarstöðinni. Cegnum þessa samstæðu mætti setja yfir tvö þúsund tonn af síld á sólarhring. 220-ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.