Ægir - 01.04.1986, Síða 32
Það er unnið allt árið við marineringu og kryddsíld. Kryddsíldin frá Höfn er lostæti
vegar var aðeins saltað í 14.244
tunnur á síðasta hausti. Þótti
mönnum það heldur lítið þar
austur frá. Pegar mest var saltað
árin 1977-79 var saltað í 25-31
þúsund tunnur á ári. Síðastliðið
haust gerði suðvestan rok í 3—4
daga meðan á vertíðinni stóð og
lokaðist þá höfnin, munaði það
því að ekki náðust þær 20 þúsund
tunnur sem búist var við.
Tveir heimabátar voru í föstum
viðskiptum á síldinni í haust,
Skógey og Steinunn, en einnig
lönduðu tveir nótabátar hjá stöð-
inni, annar úr Vogum, hinn úr
Stykkishólmi. Annars landa rek-
netabátarnir bara þar sem styst er
í land, og var síldin of austarlega
til að Hornafjörður væri í leiðinni
á síðustu vertíð. Þannig heldur
síldarsöltunin áfram að vera
hverfull atvinnuvegur, þar sem
stutt er á milli gnægta og skorts.
Starfsmenn söltunarstöðvar-
innar eru 7-9 allt árið, en allt að
100 þegar mest er. Síldarsöltun
stendur yfirleitt ekki nema tvo
mánuði, frá byrjun október og
fram til mánaðarmóta nóvember/
desember. Síðasta vertíð var
óvenju stutt frá 10. október-
2. nóvember. Hver bátur fær út-
hlutaðákveðnum kvóta, ogþegar
vel gengur að fylla hann styttist
vertíðin til bagafyrirmargarverk-
unarstöðvar.
íslenska síldin, söltuð og mar-
ineruð er aðallega seld til
Rússlands, Svíþjóðar og Finn-
lands. Markaðurinn er mjög
þröngur og erfitt að halda uppi
verðinu, ekki síst þar sem
íslenska síldin er seld hærra verði
erlendis en síld frá öðrum
löndum. Hér er um mjög við-
kvæma vinnslu að ræða og fram-
tíðin öll mjög óviss.
Síldarsöltunin er hins vegar
mjög mikilvæg fyrir Hornfirð-
inga, fyrirtækin, útgerðina,
bæjarfélagið og fólkið. Bátarnir
eru nær allir á síld á haustin, fólk
getur haft gott upp úr síldinni, þó
vertíðin sé stutt, og útflutnings-
verðmæti síldarafurða frá Höfn
nam tæpum eitt hundrað milljón-
um á síðasta ári. Þær skiptast
þannig á fyrirtækin:
Saltsíld hjá F.H. 45 milM-
Saltsíld hjá Stemmu 18 miMj-
Fryst sfldarflök KASK 25 millj-
+ úrgangur í mjöl og lýsi.
Úr síldarsöltunarstöðinni. Cegnum þessa samstæðu mætti setja yfir tvö þúsund
tonn af síld á sólarhring.
220-ÆGIR