Ægir - 01.04.1986, Blaðsíða 40
Ari Jónsson framkvæmdastjóri Vélsmiójunnar. Þaðer hugW
í þeim á Höfn. Þróun nýrrar framleiðslu og flotkví eru efst
verkefna listanum.
Af tilboðsverkum sem vél-
smiðjan hefur tekið að sér má
nefna þrjú nýlegdæmi:
Nýlokið er endurnýjun á vélar-
rúmi, rafkerfi og fleiru f fiskiskip-
inu Erlingi SF 65 og sömuleiðis í
Bjarna Gíslasyni SF 90, en þetta
eru tveir vertíðarbátar á Ftöfn. Þá
vann vélsmiðjan að endurbygg-
ingu á dýpkunarskipi því sem
Hafnarhreppur keypti árið 1984.
Meðal annars var smíðaður á
hann nýr dýpkunarbúnaður. Öll
þessi verk hafa verið unnin frá
grunni og allt þar til frágangi
verks var lokið, það er hönnun og
útfærsla, smíði og öll vinna.
Nú er stefnt að því að stofna til
nýrrar framleiðslu eða deildar á
vegum fyrirtækisins sem einbeiti
sér að búnaði fiskvinnslunnar. Á
því sviði hafa verkefni aukist
undanfarið og hverskonar bún-
aðurtil að auka hagkvæmni ogtil
vinnusparnaðar í vinnslurásun-
um er mjög að ryðja sér til rúms.
Fyrirtækið hefur yfir að ráða
tækni til þunnplötuvinnslu og
þekkingu á þessu sviði og ef sam-
starf tekst við framleiðslufyrirtæki
á staðnum ættu verkefnin að vera
tryggð.
í framtíðinni er ekki búist við
því að vinna við viðgerðir báta
aukist, heldur er stefnt að því að
auka nýsmíði og útboðsvinnu á
næstu árum. Einn möguleiki sem
getur haft mikla þýðingu fyrir
vélsmiðjuna og fleiri iðngreinar
á staðnum er bygging flotkvíar á
Höfn.
Flotkví
Á Höfn er engin dráttarbrautog
hefur aldrei verið. Fiskiskip á
Höfn verða að leita til Neskaup-
staðar, Vestmannaeyja eða á
Faxaflóahafnir til að komast í
slipp. Nokkurfyrirtæki á staðnum
unnu að gerð áætlunar um að
koma upp flotkví árið 1982 og
voru komin með puttana á eina
slíka notaða, í Evrópu, á sínum
tíma. Ekkert varð af kaupum þá,
en áhugi á þessu máli hefur
vaknað aftur nú.
Ef slík aðstaða sem flotkví skap-
ast á Höfn, er öll þjónusta til
staðar sem bátar þyrftu á að
halda, svo sem vélsmíði, járn-
smíði, trésmíði, rafvirkjar og
málarar. Hugmyndin er að þessir
aðilar myndu stofna fyrirtæki um
rekstur flotkvíar ásamt öðrum
fyrirtækjum og einstaklingum,
eins og útgerðaraðilum og
fleirum. Þá gæti sveitarfélagið
komið inn í myndina á einhvern
hátt. Dæluprammi hafnarsjóðs
kæmi til dæmis að góðum noturfl
er koma þyrfti flotkvínni fyrir a
hafnarsvæðinu.
Slíkar dokkur eða flotkvíar
hægt að fá keyptar víðsvegar '
Evrópu einmitt nú, þegar mikiH
samdráttur er víða í öllum skipa-
smíðum. Vandinn er hins vegar
að algengustu flotkvíarnar eru
yfirleitt alltof stórar miðað við
það sem þeir á Höfn hugsa sér. En
leit er í gangi og vonandi tekst
þeim að láta draum sinn rætast,
Ara Jónssyni framkvæmdastjóra
Vélsmiðju Hornafjarðar og öðrurfl
áhugasömum Hafnarbúum, efl
grein þessi er soðin uppúr viðtali
við Ara í mars síðastliðnum.
228 - ÆGIR