Ægir - 01.04.1986, Page 62
Sem áður segir er hægt að stjórna voginni úr fjar-
lægð t.d. úr brúnni, annaðhvort með tölvu eða með
sérstöku lyklaborði og prentara. Þannig er hægt að
fá útskrift af hverri einstakri vigtun fyrirsig, en einnig
er hægt að kalla fram uppgjör. Vogin leggur þá
saman (í hverju sviði fyrir sig) fjölda vigtana og
þyngd þess sem skráð hefur verið. Einnig er hægt að
fá útskrifað yfirlit yfir alla texta, einkennisnúmer og
kóda sem settir hafa verið í vogina svo sem nöfn
sviða og upplýsingar um stillingu vogarinnar.
Gerð CV5002
Vogina má tengja við lyklaborð og prentara t.d.
uppi í brú en einniger hægt að hafa takkaborð á vog-
inni sjálfri. Vogin getur skráð og tarað handvirkt eða
sjálfvirkt. CV5002 má nota á þrjá vegu.
í fyrsta lagi sem venjulega vog.
í öðru lagi sem pökkunarvog og geymir vogin þá
í minni sínu upplýsingar um allt að sex pakkninga-
stærðir ásamt yfirvigt og neitunarmörk hverrar
pakkningastærðar. Á neðri helmingi aflestrareining-
arinnar birtist þunginn á Ijóstöluformi en á efri hlut-
anum er Ijósdíóðuskali sem sýnirfrávikiðfrá réttum
þunga. Vogin ákvarðar sjálf í hvaða pakkningu sé
líklegast verið að pakka, eftir því hve mikið hefur
verið sett á vogarpallinn.
I þriðja lagi sem flokkunarvog er flokkar hráefnið
í mismunandi þyngdarflokka. Á aflestrareiningunni
birtist þunginn þá á Ijóstöluformi ásamt þeim
þyngdarflokk sem hráefnið lendir í.
Hægt er að flokka og pakka samtímis á voginni.
Þegar þunginn á bakkanum er kominn yfir ákveðið
mark þá skiptir voginn sjálfkrafa úr flokkunarhætti
yfir í pökkunarhátt.
Ef vogin er tengd við prentara þá má fá útskrift af
hverri vigtun jafnóðum. Auk þess má fá útskrifað
yfirlit yfir innihald minna en af því má sjá hvernig
vogin er stillt þ.e. pakkningastærðir, yfirvigtog neit-
unarmörk, þyngdarflokka o.fl. Einnig má fá útskrift
af uppgjöri, svo sem yfirlit yfir pakkningastærðir og
fjölda vigtana í hverja pakkningastærð og einnig
súlurit fyrir þyngdardreifingu innan ákveðinnar
pakkningastærðar. Á sama hátt fæst uppgjör fyrir
ákveðna pakkningastærð svo sem valin pakkninga-
stærð, valin yfirvigt, fjöldi vigtana, nafnvigt alls,
yfirvigt alls, raunvigt alls, meðalpakki, meðalfrávik
ogstaðalfrávik. Þegar vogin er notuðsem flokkunar-
vog þá má einnig fá yfirlit yfir fjölda sem flokkast í
hvern flokk, heildarþyngd og meðalþyngd í
hverjum þyngdarflokki. Einnig kemurfram heildar-
fjöldi flokkaðra hráefniseininga, heildarþyngd °&
meðalþyngd hráefnis.
Hjá Marel fékkst eftirfarandi tæknilýsing:
CV3002 CV5002
Vogarhaus:
Örtölva: MC 6809
Minni: Forrit 32 Kbyte Cögn 8Kbyte
Skjáir: (varin með rafhlöðu) 44 stafa (bæði fyrir bók- og tölustafi)
Stjórntakkar: 6 stafa (sýnir þyngd með tölustöfum) 2 led (núll og stöðugleikaljós) 4(FV3002A) 2 (prent og tara)
Stær6: 4+16 takka innsláttar- borð (FV3002B) 40x22x12cm 40x22x12cm
Þyngd: 8,5 kg 8,5 kg
Vogarpallur:
Hámarksþyngd: 40 kg, -upplausn 20 g 40 kg, -upplausn 20 8
Stærð: 12 kg, -upplausn 5 S 40x40x15cm 40x40x15cm
Aflnotkun:
Hámarksafl: 15 VA (12W) 220 V (110V) AC± 10% 48-62 n
Umhverfisþættir
Hitastig: —10 til + 40°C
Rakastig: að 98%
Ekki fengust verðupplýsingar frá Marel hf.
250 -ÆGIR