Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1987, Page 17

Ægir - 01.01.1987, Page 17
°rðið á þessum slóðum á sögu- ^egum tíma (Sigurður Þórarinsson 1965). Árið 1372 skaut upp eyju, en staðurinn er óviss. Jarðhiti fannst 1974 3,6 sjóm. 191° réttvís- andi á hryggnum SSV frá Kol- oeinsey. Sjávardýpi er þar 90 m Brynnst, en yfir 200 m dýpi í ^dng. Hitasvæðið er nokkur nundruð m í þvermál Gón Ólafs- s°n, munnlegar upplýsingar). Kolbeinsey stendur á sökkli, sem er nálægt 4 km í þvermál (1- teikning). 500 m norðvestur af eynni er boði og umlykur 10 m dýptarlína boðann og eyna. Sökkullinn undir Kolbeinsey er Um 300 m hár að austan og vestan, en um 150 m að norðan og sunnan. Hann er svipaður að 'ögun og sum móbergsfjöllin í gosbeltum íslands og efnismagn svipað og í þeim (2. teikning). Hér eráttviðs.k. stapa, sem myndast gýs upp úr sjó eða jökli. Efsti oiuti stapanna er hallalítill hraunskjöldur myndaður á þurru, en neðri hlutinn er úr bólstrabergi °g móbergi með skriðuhalla, sem ^nyndast af hraunrennsli út í sjó eða vatn. Lögun og stærð sökkuls- 'ns undir eynni og hraungrýtið í henni og boðum umhverfis gæti oent til að hvort tveggja sé jyjyndað í einu gosi, sem náði að hlaðast upp úr sjó. Ekki verður ráðið af dýptar- ortum hve djúpt er á skilin milli raunsins í Kolbeinsey með oálægum boðum og grunnbrot- Urn og bólstrabergs- og móbergs- ^nyndunarinnar undir. Skilin þar 3 rnilli myndu marka sjávarborð a beim tíma sem Kolbeinseyjar- sfapinn varð til. Þessi skil eru ^eikleiki gagnvart sjávarrofi ef Þau liggja rétt neðan sjávarborðs, Pai sem brimið mæðir mest á. Ef Kolbeinseyjarstapinn er frá ísöld P-e. eldri en 10.000 ára gæti ækkun sjávarborðs í ísaldarlok afa valdið því að þessi skil lægju 6. mynd. Nærmynd af Kolbeinsey úr lofti. Ágúst 1985. mun neðar. Einnig gæti sig hafs- botnsins hafa valdið því að þessi skil eru nú neðansjávar. Bergib í Kolbeinsey Bergið í Kolbeinsey er basalt- hraun svo til alveg ferskt og grá- leitt, en nokkuð oxað, þar sem mest er af blöðrum og slær þá á það brúnum blæ. Blöðrurákir og straumlögun sýna innra rennsl- ismynstrið í hraunlaginu, og má gefa það til kynna á korti með hallastefnu. Eyjan virðist vera miðhluti og efri hluti af einu hraunlagi. Á jarðfræðikorti af eynni (3. teikning) er berginu skipt í tvo meginflokka eftir groppu og láréttri kleyfni. í skiptingunni felst mat á styrkleika bergsins gagnvart þeim eyðingaröflum, sem vinna að niðurrifi eyjarinnar. 1. Heillegasta bergið er í neðri hluta eyjarinnarog nærvegna suðvestur hallans í rennslis- mynstrinu hátt upp í hana að norðaustanverðu. Þetta berg er í meðallagi blöðrótt, en blöðrurnar fremur smáar. Straumlögun eráberandi eink- um ofantil. Þar klofnar bergið nokkuð eftir straumlöguninni en neðst miklu síður og er þar stórstöl lótt. 2. Ótraust berg er í efsta hluta eyjarinnar og nær frá toppi hennar á austurhlutanum niður í sjó að vestanverðu. Þarna er bergið mjög blöðrótt og blöðrurnar fremur stórar. Straumlögun er ekki áberandi en misjafnlega blöðrótt lög skiptast á, svo að bergið fær rákótta áferð. Allra efst á vest- urparti eyjarinnar er bergið næstum frauðkennt í blöðru- beltunum. Sprungur Sprungur í bergi eru veikleiki sem roföflin ná auðveldlega að vinna á og losa um. í hraunum er jafnan mikið um sprungurog Kol- beinsey er þar ekki undantekn- ing. Láréttar kleyfnisprungur og lóðréttar stuðlasprungur verða til við rennsli og storknun hraun- laga. Láréttu sprungurnar fylgja straumlöguninni og eru veikleiki íefri hluta eyjarinnar. Þareru þær ÆGIR - 9

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.