Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 60
NÝ FISKISKIP
Sigurfari VE 138
76. júní s.l. bættist við flota Eyjamanna nýtt
fiskiskip, m/s Sigurfari VE 138, sem keypt var notað
frá Svíþjóð. Skip þetta, sem áður hét Glomfjord, er
smíðað hjá Strandby Skibsværft A/S, Strandby í
Danmörku árið 1984, og er smíðanúmer 79 hjá
stöðinni.
Skipið er sérstaklega byggt til togveiða og er með
eitt heilt þilfar milli stafna og hlífðarþilfar yfir
mestum hluta aðalþilfars. Eftir að skipið kom til
landsins hafa ýmsar endurbætur verið gerðar, m.a.
á búnaði á vinnuþilfari ogöryggis- og rafeindatækja-
búnaði.
Sigurfari VE er í eigu Haraldar Gíslasonar og
Bjarna Sighvatssonar í Vestmannaeyjum. Skipstjóri
á skipinu er Benóný Færseth og 1. vélstjóri Óðinn
Kristjánsson.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki >í< 1A1,
R280, Stern Trawler, ®<MV. Skipið er með eitt heilt
þilfar stafna á milli, gafllaga skut, hlífðarþilfar (efra
þilfar), sem nær aftur undir toggálga, aftarlega á
skipinu, og brú rétt aftan við miðju á hlffðarþiIfari.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með þremur
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rými, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; geymslu- og
hliðarskrúfurými, og lestarrými þar fyrir aftan með
botngeymum fyrir brennsluolíu; vélarúm með botn-
geymum í síðum fyrirferskvatn og íbúðarými (káeta)
yfir aftasta hluta vélarúms; og aftast stýrisvélarrými
fyrir miðju og skutgeymar í síðum fyrir brennsluolíu.
I lokuðu milliþilfarsrými á aðalþilfari er fremst
geymsla og rými fyrir hafnarljósavél, þar fyrir aftan
vinnuþilfarogíbúðarými aftast. Aftantil áaðalþiIfari
eru toggálgar út við síður, með sambyggðum tog-
gálgapalli þvert yfir, og undir og aftan við opið
þilfar, þar sem vörpuvindu er komið fyrir.
Stýrishús skipsins er aftantil á hlífðarþilfari, eins
og fram hefur komið. Aftast á þaki stýrishúss er rat-
sjármastur. Framantil á hlífðarþilfari er mastur með
bómu og gálgi fyrir pokalosun s.b.-megin við brú.
Mesta lengd ...................... 23.82 m
Lengd milli lóðlína .............. 20.30 m
Breidd (mótuð) .................... 6.80 m
Dýpt(mótuð) ....................... 3.65 m
Eiginþyngd ..................um 180 t
Lestarrými ......................... 130 m3
Brennsluolíugeymar .................. 34 m'
Ferskvatnsgeymar ................ 5m‘
Sjókjölfestugeymir ................... 5 m3
Rúmlestatala ....................... 115 brl
Skipaskrárnúmer ................... 1743
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er CaterpiIlar, gerð D 379 TA,
átta strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftir-
kælingu, sem skilar 416 KW (565 hö) við 1225 sn/
mín. Við vélina er niðurfærslugír frá Pay & Brink af
gerð PB 2375-45, niðurgírun 3.7:1, ogskiptiskrúfu-
búnaður frá Heimdal, skrúfa 3ja blaða með 1700
mm þvermáli.
Við fremra aflúttak aðalvélar tengist útkúplan-
legur deiligír, sem við tengjast fjórar Denison vökva-
þrýstidælur fyrir vindur, hliðarskrúfu og vökvaknú-
inn rafal.
Vökvaknúinn rafall er frá Stamford, 16 KW (20
KVA), 3x380 V, 50 Hz.
í skipinu er ein hjálparvél frá Volvo Penta af gerð
TMD 100, 118 KW við 1500 sn/mín, sem knýr 68
KW (85 KVA) 3x380 V, 50 Hz riðstraumsrafal frá
Stamford af gerð MC 334B. Að auki er ein Lister
hjálparvél af gerð TL 3, 1 7.4 Kw við 1500 sn/mín og
við hana 17.6 KW (22 KVA), 3x380 V, 50 Hz Stam-
ford riðstraumsrafal.
í skipinu er olíukyntur miðstöðvarketill frá
Vplund.
Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin. Skipið er búið
vökvaknúinni hliðarskrúfu að framan frá J.W. Berg
af gerð SPF 0.5/80, þvermál 530 mm.
Ræsiloftþjöppur eru tvær frá Atlas Copco af gerð
Airlet LT 530. Fyrir vélarúm og loftnotkun véla eru
tveir rafdrifnir blásarar frá Transmotor.
Rafkerfi skipsinser380 V riðstraumurfyrirmótora
og stærri notendur, og 220 V riðstraumur og 24 V
jafnstraumur fyrir lýsingu o.þ.h. í skipinu er land-
tenging.
Fyrir vélarúm er Halon 1301 slökkvikerfi.
Upphitun íbúða er með miðstöðvarofnum, sem
fá varmafrá kælivatni aðalvélarog miðstöðvarkatli.
Fyrir upphitun á heitu vatni er heitavatnsgeymir,
tengdur miðstöðvarkatli. íbúðir og vinnuþilfar er
52 -ÆGIR