Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 14
5. mynd. Kolbeinsey noröan frá. Sprungur í austurhöfðanum og straumlögun bergsins sést greinilega. Ágúst 7 985.
hafsbotn
,16U<eí
61°
2. teikning. Uppbygging móbergsstapa. Hraunskjöldur ofan á bólstrabergi og
móbergi meö skriöuhalla.
Almenn lýsing
Kolbeinsey var mæld á flóði
um kl. 21:00 þann 15. ágúst
1985 og reyndist vera 39 m frá
VNV til ASA og 39 m frá NNA til
SSV. Á útfalli fjarar af klöppum
vestast og nyrst á eynni, þannig
að stærðin verður um 40 m frá
VNV til ASA og um 42 m frá NNA
til SSV. Eyjan er hæst að austan,
um 5 m, miðað við meðalsjávar-
stöðu. Sprungugeil liggur í
gegnum hana frá NNA til SSV og
skiptir henni í tvo höfða. Sá eystri
er minni um sig, en hærri og þver-
brattur öllum megin sem snýr að
sjó. Vesturhöfðinn er hæstur um
3,5 m sunnan til. Hann er afhall-
andi til vesturs í sjó fram. Hæst er
niður af honum að sunnan, um
og innan við mannhæð. Flúðir
eru fast upp við eyna suðaustan
og suðvestan megin og koma
uppúr á útfalli.
Austurhöfðinn er úr fremur
heillegu bergi sem klofnar í stórar
blokkir, en í vesturhöfðanum er
bergið gropnara og yfirborðið
smástöllótt. Eindreginn vestlægur
halli er ístraumlögóttu bergi vest-
urhöfðans og gengur gropna
bergið í honum upp á austurhöfð-
ann. Ekkert lausagrjót er í eynni.
Hún er alþakin brúnþörungum
neðan flóðmarka og sumsstaðar
hrúðurkörlum, en þar ofan við er
6 - ÆGIR