Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 30

Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 30
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur: SJÓRANNSÓKNIR við Færeyjar í júní 1986 í Færeyjastraumi a. Golfstraumurinn gerir ísland byggilegt segir víða í ræðu og riti. Þá er átt við hlýja sjóinn sunnan úr hafi, sem er kenndur við Mexikóflóa (Gulf of Mexico), þótt aðeins lítill hluti hans tengist í raun flóanum. Tölurnar á 1. mynd sýna styrk straumanna eða rúm- mál rennslis þeirra á tímaeiningu. Þær eru allt frá 65 Sverdrup ein- ingum (Sverdrup=106m3sek-’) suður af Nýfundnalandi til 1-2 einingar við Island. Til saman- burðar má geta þess að eitt Sver- drup samsvarar 10 Amason- fljótum og 2500 Þjórsám. b. Sú grein Golfstraumsins eða Norður-Atlantshafsstraumsins, sem berst til íslands, nefnist Irm- ingerstraumur eftir merkum dönskum flotaforingja (Irminger 1802-1888). Eins og áður sagði þá er rennsli Irmingerstraums metið á um 2 Sverdrup og klofnar straumurinn í tvær greinar í Grænlandshafi, fer önnur til Grænlands og hin oftast nær um Grænlandssund inn í hafið fyrir norðan ísland eða íslandshaf. Hver um sig eru þær um eitt Sverdrup. Sjórinn í Irminger- straumi gengur undir nafninu Atl- antssjór eða einfaldlega hlýsjór. Hitastig hans við ísland erá bilinu 4-8°C og seltan er um og yfir 35%o og vart hærri en 35.15 °/oo. c. Mikið magn Atlantssjávar berst með Noregsstraumi í Norðurhaf eða um 6-7 Sverdrup einingar. Sá straumureroftasttal- inn leita norður á bóginn um sundið milli Færeyja og Shet- landseyja (sbr. 1. mynd). Jafn- framt hefur rennsli hlýsjávar yfir hrygginn milli íslands og Færeyja oftast verið talið lítið. Eins virðist sú skoðun vera lífseig að Atlants- sjórinn berist upp að íslandi við Suðausturland og leiti þaðan vestur með landinu. Þessuerekki alveg þannig farið, heldur berst Atlantssjórinn í kvíslum norður á bóginn og streymir hann annars vegar vestur með landinu og hins vegar austur með landinu allt norður á svonefnt Rauðatorg, djúpt úti fyrir Austfjörðum og svo þaðan til Færeyja og inn í Norðurhaf (2. mynd). d. Færeyjastraumur. Miklar líkur eru einnig fyrir því að auk streymis Atlantssjávar um sundið milli Færeyja og Shetlandseyja sé einnig um töluvert streymi að ræða beint sunnann úr íslands- djúpi í Norðurhaf yfir land- grunnshallanum norður af Fær- eyjum. Þessi síðastnefnda kvísl Golfstraumsins norður af Færeyj- um hefur til skamms tíma oftast verið vanmetin af haffræðingum og öðrum sem um hafa fjallað. Þessi kvísl hefur hlotið heitið Fær- eyjastraumur. Til að kanna þetta mál nánar voru sumarið 1986 gerðar, fyrir frumkvæði Færeyinga, tölu- verðar straummælingar með baujulögnum fyrir norðan Fær- eyjar á vegum rannsóknastofn- ana á öllum Norðurlöndum. Tvö rannsóknaskip, Hákon Mosby frá háskólanum í Bergen og Magnús Heinason frá Fiskirann- sóknastofunni í Þórshöfn, tóku þátt í mælingunum, en vísinda- menn frá öllum Norðurlönd- unum voru um borð í skipunum með tæki og áhöld. íslendingar lögðu fram straummæla og svo- nefndan sleppibúnað, sem gerir kleift að nota neðansjávarlögn sem losa má frá festum við botn með hljóðmerkjum. Höfundur þessa greinarkorns var með í ferðum á Hákon Mosby sem full- trúi Hafrannsóknastofnunarinn- ar. Mælistaðirnir eru sýndir á 3. mynd og athugunardýpin á 4. mynd. Mælingar fóru fram í júní 1986 í tvær vikur samfleytt á tíu mínútna fresti. Þessi mælitími er fremur stuttur en ekki var lagt í að 22 -ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.