Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 20
sprungur. Líklegt er talið að lárétt
skil milli hraunbelta séu á fárra
metra dýpi undir eynni. Þau
valda því að smám saman grefst
undan henni og blokkir losna og
hverfa í sjóinn.
Ýmsar aðgerðir hafa verið
ræddar til að hefta niðurbrot
eyjarinnar, en áður en hafist yrði
handa um slíkt, er talið nauðsyn-
legt að dýptarmæla kringum eyna
og kafa við hana til að kanna
aðstæður utan í henni eins vel og
kostur er. Snemma kom sú hug-
mynd fram að steypa hjúp yfir
eyna til varnar hafís og brimi, en
engan veginn er víst að sú aðgerð
ein sérsé nægjanlegtil langstíma
litið. Endanlegar tillögur hafa því
ekki enn verið mótaðar.
Árið 1964 var sett upp ratsjár-
merki sem stóð á þremur stál-
rörum sem voru boruð og steypt
niður í klöppina. Strax á fyrsta
vetri fór merkið í sjóinn. Senni-
lega hefur ísinn verið þar að verki
enda var töluverður ís þá um vet-
urinn. í Ijósi þessarar reynslu
hefur Hafnamálastofnun lagt til
að sett verði upp sjómerki á Kol-
beinsey, steinsteyptur píramíti
með innfelldum radarspeglum.
Slík sjómerki hafa verið sett upp
á skerjum fyrir Suðausturlandi.
Sótt hefur verið um fjárveit-
ingar til fyrrnefndra athugana og
uppsetningar sjómerkis.
Höfundar: Kristján Sæmundsson
er jarðfræðingur hjá Orkustofn-
un, Sigurður Sigurðarson er verk-
fræðingur hjá Hafnamálastofnun-
inni.
Ljóðað á Kolbeinsey
í umræðum á 45. Fiskiþingi um
„Kolbeinsey" varpaði Kristján
Ásgeirsson frá Húsavík fram eftir-
farandi stöku:
Þingheimur ályktar þegar í staö
að þrumuverörunum sloti
svo komist til framkvæmda krafa
um það
að „Kolbeinsey" haldist á floti.
vestur-þýsku
björgunarbátarnir
eru í samræmi
við ströngustu
kröfur íslendinga.
Hringlaga
inngangsop
og fleiri
endurbætur.
Bátur til sýnis
hjá okkur.
»• L I P I . y Hverfisgötu 6, Reykjavík
riAlján u. liiALaAnn F Sími: 20000
12 -ÆGIR