Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 35

Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 35
Gunnlaugur Friðbjarnarson: Fiskmjölsþurrkun með óbeinni loftupphitun mengun, gufuþurrkun Þessa dagana er mikið rætt um hvort betra sé að þurrka og fram- leiða fiskmjöl með gufuþurrkur- um eða nota hreint loft sem hefur verið hitað upp óbeint til að sjá um þurrkunina. Inn í þessar umræður spinnast einnig áform og áætlanir í meng- unarvörnum, en lög og reglu- gerðir koma til með að gera eig- endum verksmiðjanna skylt að setja upp hreinsibúnað til að fjar- lægja daunillar og mengunar- valdandi efni úr útblástursreyk beirra. Oft fer það eftir ágæti viðkom- andi sölumanna hvernig tekst að sannfæra verksmiðjueigendur um það hvaða þurrkunaraðferð sé best. Besta þurrkunaraðferðin hrefst þá einmitt tækja frá þeim hinum sama. Rétt er þó að fara sér að engu óðslega í þeim efnum og skoða vandlega, frá sem flestum hliðum, kosti og galla hverrar aðferðar fyrir sig. Gufuþurrkarar vinna með óbeinni upphitun efnisins og hefur það að öllum jafnaði jákvæðar áhrif á gæði afurðarinn- ar. Þó er efnið nokkuð lengi (30- 90 mín) í snertingu við hitafletina (150-160°C) og er það talið hafa neikvæð áhrif á samsetningu próteina. Hins vegar er dvalartími efnis- ins í hefðbundnum belgþurrkur- um, samkvæmt norskum athug- unum (1), miklu minna eða V2- 25 mín. allteftir kornastærð. Þurrkarar er vinna með lofti, hituðu uppóbeint, lúta sömu lög- málum og eldþurrkarar og er efn- ishiti talinn vera nálægt votkúlu- hitastigi* (60—80°C). Þó eru * Votkúluhitastig: er það hitastig er myndast í votum hnoðra er rakt loft streymir yfir hann. " LT-þurrkari: „Low Temperature" stendur einnig fyrir ákveðnum gæðum mjöls, krefst þess að unnið sé úr fersku hráefni. afköst þeirra öllu lélegri þar eð lofthiti inni í þurrkara er sjaldan hærri en 350°C (LT-þurrkari**) og þar af leiðandi getur þetta loft ekki tekið eins mikinn raka upp og loft er hefur hærra hitastig. Litlir möguleikar eru á yfirhitun efnis í LT-þurrkurum, einna helst ef raki efnis verður mjög lítill (10%). Bæði LT-mjöl og gufu- þurrkað mjöl seljast hærra verði en hefðbundið eldþurrkað fisk- mjöl ef það erframleitt úr nýju og óskemmdu hráefni. Gufuþurrkun gefur möguleika á endurnýtingu orku eimsins en það er öllu erfiðara með loft- straum LT-þurrkarans, þó ekki með öllu útilokað. Höfundur greinarinnar lét sér detta í hug framleiðslurás er nýtir sér mest af tækjum verksmiðju er fyrir eru, byggir á LT-þurrkun og flotbedda („fluid bed"), og hring- keyrir þurrkunarloftið (sjá mynd 1). Loftið er hitað upp óbeint í varmaskipti. Flotbeddi er tæki sem vinnur þannig að lofti er blásið upp í gegnum gatasíu. Fyrirofan síuna er efnisstæðan sem á að þurrka. Ef lofthraðinn er nógu mikill þyrl- ast efnið upp og blandast kröftug- ÆGIR-27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.