Ægir - 01.01.1987, Blaðsíða 35
Gunnlaugur Friðbjarnarson:
Fiskmjölsþurrkun
með óbeinni loftupphitun
mengun, gufuþurrkun
Þessa dagana er mikið rætt um
hvort betra sé að þurrka og fram-
leiða fiskmjöl með gufuþurrkur-
um eða nota hreint loft sem hefur
verið hitað upp óbeint til að sjá
um þurrkunina.
Inn í þessar umræður spinnast
einnig áform og áætlanir í meng-
unarvörnum, en lög og reglu-
gerðir koma til með að gera eig-
endum verksmiðjanna skylt að
setja upp hreinsibúnað til að fjar-
lægja daunillar og mengunar-
valdandi efni úr útblástursreyk
beirra.
Oft fer það eftir ágæti viðkom-
andi sölumanna hvernig tekst að
sannfæra verksmiðjueigendur
um það hvaða þurrkunaraðferð
sé best. Besta þurrkunaraðferðin
hrefst þá einmitt tækja frá þeim
hinum sama.
Rétt er þó að fara sér að engu
óðslega í þeim efnum og skoða
vandlega, frá sem flestum
hliðum, kosti og galla hverrar
aðferðar fyrir sig.
Gufuþurrkarar vinna með
óbeinni upphitun efnisins og
hefur það að öllum jafnaði
jákvæðar áhrif á gæði afurðarinn-
ar. Þó er efnið nokkuð lengi (30-
90 mín) í snertingu við hitafletina
(150-160°C) og er það talið hafa
neikvæð áhrif á samsetningu
próteina.
Hins vegar er dvalartími efnis-
ins í hefðbundnum belgþurrkur-
um, samkvæmt norskum athug-
unum (1), miklu minna eða V2-
25 mín. allteftir kornastærð.
Þurrkarar er vinna með lofti,
hituðu uppóbeint, lúta sömu lög-
málum og eldþurrkarar og er efn-
ishiti talinn vera nálægt votkúlu-
hitastigi* (60—80°C). Þó eru
* Votkúluhitastig: er það hitastig er
myndast í votum hnoðra er rakt loft
streymir yfir hann.
" LT-þurrkari: „Low Temperature"
stendur einnig fyrir ákveðnum
gæðum mjöls, krefst þess að unnið
sé úr fersku hráefni.
afköst þeirra öllu lélegri þar eð
lofthiti inni í þurrkara er sjaldan
hærri en 350°C (LT-þurrkari**) og
þar af leiðandi getur þetta loft
ekki tekið eins mikinn raka upp
og loft er hefur hærra hitastig.
Litlir möguleikar eru á yfirhitun
efnis í LT-þurrkurum, einna helst
ef raki efnis verður mjög lítill
(10%). Bæði LT-mjöl og gufu-
þurrkað mjöl seljast hærra verði
en hefðbundið eldþurrkað fisk-
mjöl ef það erframleitt úr nýju og
óskemmdu hráefni.
Gufuþurrkun gefur möguleika
á endurnýtingu orku eimsins en
það er öllu erfiðara með loft-
straum LT-þurrkarans, þó ekki
með öllu útilokað.
Höfundur greinarinnar lét sér
detta í hug framleiðslurás er nýtir
sér mest af tækjum verksmiðju er
fyrir eru, byggir á LT-þurrkun og
flotbedda („fluid bed"), og hring-
keyrir þurrkunarloftið (sjá mynd
1). Loftið er hitað upp óbeint í
varmaskipti.
Flotbeddi er tæki sem vinnur
þannig að lofti er blásið upp í
gegnum gatasíu. Fyrirofan síuna
er efnisstæðan sem á að þurrka.
Ef lofthraðinn er nógu mikill þyrl-
ast efnið upp og blandast kröftug-
ÆGIR-27