Ægir - 01.01.1987, Síða 41
þeir keyptu 2 „tuns" eða 2268
lítra.
Ekki er getið kaupverðsins á
víninu, fremur en öðrum sölu-
varningi, (nema bjórnum, hann
er í kostreikningnum). Auk víns-
'nsersagt þeirhafi haftmeðsértil
sölu vax, föt, vefnaðarvöru,
stranga úr vaðmáli, léreft og silki,
rúmteppi, brýni koparkatla,
smíðajárn, og svoerfærsla: „paer
°f Burts of Store viijs," sem ég
verð að láta öðrum eftir að þýða.
Vestmannaeyingar hafa eflaust
fagnað komu James frá Dunwich,
er> Vestmannaeyjar voru eina
höfnin, sem Englendingum var
fnðvænlegt á þegar komið var
framundir miðja 16du öld.
Hansamenn og Danir í samein-
ln§u búnir að hrekja þá úr öðrum
bækistöðvum.
Ekki eru kaupupphæðir skip-
verja háar í tölum nútímans,
Sander skipstjóri átti að hafa 11
sterl. pd. fyrir ferðina og borga af
því þjóni sínum. jahn, hét gjald-
kerinn og birgðastjórinn og hann
hafði í kaup £5. 13s. 4d. Þá var
Harry Gray, sem bar stöðuheitið
„skave master," hvað svo sem
það hefur merkt, og, hann hefur
£8. og þarna er annar, Gray
William, eitthvað lægra settur,
sem hafði £6. 10s., bátsmaður-
inn hafði £3. 6s. 8d., smiðurinn
£5. beykirinn 48s. 4d., kokkur-
inn 46s. 8d. „souldier" sem
merkir einhverskonar soldáta
hafði 40s., skyttan 43s. 4d. og
afgangurinn af skipshöfninni
hafði 45s. niður í 36s. 8d. Alls var
„the Somme totallys of al manner
of Chargis Outward amount to
ccxxxij. xix. viij," en það útleggst
að allt kaup skipverja á James of
Dunwich hafi verið £232. 19s.
8d., og þar í líklega verið kaup
kaupmannsins, en það er sagt
hafa verið £6. Hann hefur sem sé
verið á vegum útgerðarinnar en
ekki eigin vegum.
Jamesverjar áttu framundan 14
daga siglingu, ef byrlega blés, en
undir ströndum íslands biðu
þeirra Hamborgarar með hlaðnar
kanónur, þegar framá þennan
tíma var komið.
Og víkur þá sögunni aftur til
baka, þar sem skilið var við Eng-
lendinga í Vestmannaeyjum
1415.
Frá árabátum til tullkomnustu fiskiskipa
Vélasalan ávallt í fararbroddi.
Vélasalan hf.
Ananaustí 1 - Simi 26122
Sjómanna Almanak
1987
Fæst á skrifstofu félagsins
Sent gegn póstkröfu
FISKIFÉLAG ÍSLAMDS
Höfn Ingóifsstræti
Pósthólf820-Sími 10500
ÆGIR- 33