Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1987, Side 44

Ægir - 01.01.1987, Side 44
Vestfirskt þilskip á siglingu. inn S0, um kveldið gengur vindur í vestur, er þá sett til segl og siglt 0 st og það látið standa um nóttina. 27. [apríll: Skipið liggur á fiskislóð 9 kvm N0 af Straum- nesi. Hægð og gott veður. 28. [apríl]: Sunnudagur. Kl. 12-4 formiðdags. Vindur NV með kafaldi. Kl. 4-7 formiðdags, bjart og gott veður, vindurinn snýst til N0. Skipinu er siglt 0 til kl. 3 eftirmiðdags og þá lagttil 10 kvm í N0 af Kögri kl. 4-5 eftir- miðdags fæst hvergi landsýn, veðrið fer versnandi með dimm- viðri. Lekinn á skipinu fer minnk- andi. 29. [apríl]: Stormur og kafald. Kl. 4-7 er skipið lensað og ekki fiskaðfyren fyrirvestan djúpál og Barða og finnst hvergi fiskur, allt í góðu lagi um borð. 30. [apríl]: Vindurinn vestan með kafaldsjeljum. Skipinu er siglt á leið 0 aftur því hvergi finnst fiskur. Kl. 3 eftirmiðdags er lagt til 13 kvm í Nt0 af Deild. 1. [maí]: Heiðríkt og gott veður. Skipið dífur á fiskislóð á líku svæði, allt í góðu lagi. 2. [maí]: Gott veður, vindurinn V. Skipið drífur á líku svæði. Kl. 4-5 er siglt 0 og lagt til 10 kvm í NN0 af Kögri. Vindurinn S0 og lítur út fyrir að hvessa. Kl. 7-8 eftirmiðdags er komið drifaveð- ur. Skipinu er siglt vestur fyrir Djúpál og lagt til 2 kvm af Kefla- vík, veðrið fer versnandi. 3. [maí]: Sami stormurinn, en kominn frá SV. Kl. 6 formiðdags er siglt vestur undir Barða.KI. 10 formiðdags breyttist vindur til vesturs með kafaldshríðum og grófum snjó, svo hvergi er viðvært. Er þá siglt til Dýrafjarðar og varpað þar grunnfesti kl. 11 eftirmiðdags. Liggja þar fimm skip fyrir. 4. [maí]: Sunnudagur. Skipið liggur á sama stað. Sama vind- staða með roki og rigningu á höfninni. Kl. 11 eftirmiðdags koma 2 skip inn. 5. [maí]: Sami stormur og veðurlag. Skipið á sama stað. 6. [maí]: Lítur útfyrir að vægja muni storminn. Kl. 6 formiðdags eru heist segl og siglt út. Kl. 2 eftirmiðdags er skipinu lagt til 12 kvm í NNV af Nesi. Vindur er töluvert mikill enn og sjóþungi mikill. 8. [maí]x: Skipið drífur í líkri fjarlægð út af Súgandafirði, vind- urinn V og fer minnkandi. 9. |maí]: Bjart og gott veður. Vindurinn NNV. Skipið á líku svæði. 10. [maí]: Kóngsbænadagur. Skipið á líku svæði. Heiðríkja, hægð og góðviðri. 11. [maí]: Skipið á líku svæði. Sama góðviðrið. 12. [maí]: Sunnudagur. Vindur 0 með þykkviðri. 13. [maí]: Vindurinn V með 36-ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.