Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1987, Page 13

Ægir - 01.11.1987, Page 13
11/87 ÆGIR 629 [sunir góðu. Með þessu móti nefUr sjávarútvegurinn haldið sföðu sinni sem helsta uppspretta eagvaxtar þrátt fyrir veiðitak- ^rkanir á okkar helstu botnfisk- tegundum. Afram verður að halda af uHum krafti við rannsóknirogtil- raunir með veiðar og vinnslu teg- Ur)da sem ekki eru nýttar í dag. ^ikilvægt er að finna leiðir til að gera verðmæti úr þeim úrgangi Sem til fellur við vinnslu á helstu nVtjafiskum okkar. Hér má fyrst nefna úrgang frá frystitogurum, Sern henda yfir 60% af þyngd Þess afla sem þeirdraga úr sjó, og 6|nnig úrgang frá skelfiskverk- spniðjum, sem er meira en % af 'nnvigtuðum afla. Sá hluti aflans Sem fleygt er í dag getur orðið Undirstaða mikillar verðmæta- s|^öpunar. Sem dæmi má nefna verð á lifur og lýsi hefur ^kkað mjög upp á síðkastið. 'ns vegar hefur verið vandamál ,ö dfvega nægjanlegt hráefni fyrir -Vsis- og lifrarvinnslu. Erfitt er að fá sjómenn til að hirða lifur. Hér arf að verða breyting á, því ^'klum verðmætum er kastað á ~.aa- Af þessum ástæðum hefur Hvarútvegsráðuneytið nýlega a'ó Rannsóknastofnun fiskiðn- ^ ar'ns að gera hagkvæmnisat- u8un á rekstri sérstaks verk- J^'ójuskips er hefði það hlutverk j safna Iifur og öðrum úrgangi [a skipum á miðunum. Ef slíkt V'i'irtaeki kæmist á laggirnar undi sá rekstur án efa tengjast einhverju leyti framleiðslu líf- na og annarra þátta sem stuðlað íx u a& uppbyggingu líftækni- *"a6ar hér á landi. Nú hillir l | lr lok samstarfsverkefnis I stu mnnsóknastofnana lands- ^ s' líftækni. Niðurstöður virðast seenda til að mestir möguleikar hv Sv'^' f'skiðnaðar, bæði aðf Snertir notkun líftæknilegra 6rða og vinnslu lífefna úr fisk- úrgangi. í athugun er stofnun fyrirtækis er sjái um rannsóknir, ráðgjöf og framleiðslutilraunir í líftækni. Slíkstarfsemi erán efa til þessfallin aðeflasjávarútveginn. Fyrir næsta þing Norðurlanda- ráðs verður af hálfu ráðherra- nefndar ráðsins lögð fram sérstök áætlun um samstarf í líftækni. íslendingar hafa lagt mikla áherslu á málið og haft þar frum- kvæði. Hefur undirbúningur staðið í heilt ár með þátttöku íslenskra vísindamanna. Aætl- unin tekur til fjölmargra þátta vís- inda og atvinnulífs og ætti tví- mælalaust að geta orðið lyfti- stöng fyrir íslenskan sjávarútveg. Áætlað er að á næstu fimm árum muni Norðurlandaráð leggja tæplega 250 m.dkr. til þessa verkefnis og einstök ríki meira en þrefalt hærri mótframlög. Saman- lagt verður því varið til þessa verkefnis fjárhæð er samsvarar nálægt 6 milljörðum ísl.kr., sem sýnir vel hve miklu fé þarf að verja til rannsókna á nýjum sviðum ef tryggja á árangur. S.l. vor skipaði Rannsóknaráð ríkisins starfshóp til athugunar á tæknibreytingum í fiskiðnaði. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni í júní s.l. og í framhaldi af því samþykkti sextugasti fundur Rannsóknaráðs ríkisins áskorun til ríkisstjórnarinnar um átak til tækniframfara í fiskiðnaði. Sjáv- arútvegsráðuneytið hefur í sam- vinnu við Rannsóknaráð, Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins og helstu aðila í fiskiðnaði hafið könnun á því hvernig best megi taka til hendinni á þessu sviði. Áhersla hefur verið lögð á að fá fram sjónarmið atvinnugreinar- innar, þannig að tryggt sé að starfið verði markvisst. Áhuginn og hreyfiaflið í slíku þróunarstarfi verður að koma frá fyrirtækjum í greininni, þó að stjórnvöld greiði fyrir og samræmi aðgerðirnar. 5. Framtíðarþróun - heildarsýn I drögum að frumvarpi um stjórn fiskveiða, sem hér liggur frammi til umfjöllunar, er lagt til að fiskveiðistefnan verði mótuð til lengri tíma en áður. Sérfræð- ingar telja oft æskilegt að stefna við stjórn fiskveiða sé mótuð til enn lengri tíma eða 10-15 ára. Þá telja margir fræðimenn að raunhæfasta lausnin við fisk- veiðistjórnun felist í að veiðileyfi verði seld. Veiðarnar myndu þá að þeirra mati safnast smám saman til þeirra er útgerð reka með mestri hagkvæmni. í okkar fámenna landi höfum við reynt að feta veginn milli hagkvæmnis- og réttlætissjónarmiða af fyllstu varfærni. Þau sjónarmið er liggja að baki fræðilegum ályktunum um þetta efni munu þó án efa vega þyngra í framtíðinni þegar ákvarðanir verða teknar um stjórnun fiskveiða. Við stefnumótun í sjávarútvegi verðum við að hafa heildarsýn að leiðarljósi, þannig að takmarkað- ur afli skapi þjóðarbúinu sem mest verðmæti. í vaxandi mæli verðum við að horfa á sjávarút- veg okkar í alþjóðlegu samhengi. Kemur þar margt til, svo sem samningar við nágrannaríkin um fiskstofna er ganga milli haf- svæða, samkeppni á erlendum mörkuðum, barátta fyrir ótví- ræðu forræði yfir auðlindum í lögsögu landsins, sbr. hvalamál- ið, mengun hafsins og strangari sérkröfum markaða. Hér má nefna sem dæmi hringormamál í Þýskalandi, ýmsar kröfur Efna- hagsbandalagsins og lagafrum- varp á Bandaríkjaþingi um eftirlit með innfluttum matvælum. Við verðum ætíð að hafa hugfast að fenginn afli skilar þjóðarbúinu engu fyrr en hann er seldur. Við- skiptavinurinn hefur alltaf síðasta

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.