Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1987, Síða 21

Ægir - 01.11.1987, Síða 21
11/87 ÆGIR 637 Jón Jónsson, fiskifræðingur: Sjó- og fiskirannsóknir við ísland Fimmtíu ár frá stofnun Atvinnudeildar Háskólans Fyrstu sjórannsóknir við ísland voru gerðar á árunum 1878-79 á danska varðskipinu Fylla og var fc>á mældur hiti og selta frá yfir- borði að botni á nokkrum sniðum úti af Vestur- og Norðurlandi. Á bann hátt tókst að færa sönnur á kenningu Carls Irmingers flota- foringja er hann hafði sett fram bremur og hálfum áratug áður, að grein úr hinum hlýja Norður- Átlantsstraumi falli upp að suður- strönd landsins og þaðan norður •aieð vesturströndinni. Mæl- 'ngamar úti af Norðurlandi sýndu ennfremur að hluti af þessum straumi heldur áfram austur með norðurströndinni. Nefndu Danir straum þennan Irmingerstraum eftir þessum forvígismanni haf- rannsókna hér við land. Á árunum 1895-96 gerðu Danir merkilegar rannsóknir á varðskipinu Ingólfi, en áður böfðu verið sett í skipið hin full- kornnustu rannsóknatæki þeirra tíma. í þessum leiðangri fengust 'tarlegar upplýsingar um ástand sjávar við ísland og mergð og útbreiðslu lægri dýra. Martin Knudsen sjófræðingur færði sönnur á að Irmingerstraumurinn skiptir sér úti af norðanverðum ^estfjörðum; önnur greinin beldur suður með Austur-Græn- ^andi og rennur þar samhliða ÁUsturgrænlandsstraumnum og norður með Vestur-Grænlandi. blin greinin fellur með Norður- I tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá stofnun Atvinnudeildar Háskól- ans hefur Jón Jónsson fyrrverandi forstöðu- maður Hafrannsókna- stofnunar tekið saman eftirfarandi yfirlit yfir sjó- og fiskirannsóknir við Island. landi og suður með Austfjörðum. Knudsen lýsti einnig fyrstur manna þeirri grein Austurgræn- landsstraumsins er fellur austur með íslandi og nefndi hann Austur-íslandsstraum. Ekki var hinn dýrafræðilegi árangur síðri og var þar lagður grundvöllur að þeirri þekkingu sem við búum við í dag. Þegar Alþjóðahafrannsókna- ráðið var stofnað árið 1902 tóku Danir að sér rannsóknirnar við ísland og í leiðöngrum á rann- sóknaskipinu Thor á árunum 1903-05 var aflað haldgóðrar vitneskju um hrygningu helstu nytjafiska við landið. Þá voru einnig framkvæmdar fyrstu merk- ingar á þorski og skarkola hér við land og gáfu þær þegar allgóða rtiynd af göngum þessara tegunda og sókn einstakra þjóða í þessa stofna. Einnig voru gerðar kerfis- bundnar athuganir á mergð og útbreiðslu plöntusvifs við landið og rannsakaðir lífshættir rauðát- unnar'. Danir komu svo næstum árlega með r/s Dönu á árunum 1924-39 og gerðu ítarlegar athuganir á lifnaðarháttum helstu nytjafiska við landið. Þá byrjuðu þeireinnig hinar merku rannsóknir í Faxaflóa er síðar urðu grund- völlur að kröfu Islendinga um friðun flóans. Þá voru einnig gerðar rækilegar rannsóknir á dýrasvifi við landið og m.a. á þýðingu rauðátunnar fyrir síld- veiðarnar norðanlands. Samtímis þessu vann Bjarni Sæmundsson brautryðjendastarf sitt á sviði fiskirannsókna, auk rannsókna á lægri dýrum og liggur eftir hann ótrúlegt starf, enda sagði danskur starfsbróðir hansaðekki væsti um íslendinga, þeir ættu tíu fiskifræðinga þar sem væri Bjarni Sæmundsson. í byrjun aldarinnar vann Helgi Jónsson grasafræðingur ákaflega merkilegt starf á sviði botnþör- ungarannsókna. Doktorsritgerð hans um þetta efni árið 1910 lýsir 200 tegundum botnþörunga við landið, útbreiðslu þeirra og lífs- háttum. Er haft fyrir satt að botn- þörungaflóra íslands hafi þá verið betur þekkt en víðast annars staðar í heiminum. Fiskifélag íslands hóf kerfis-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.