Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1987, Side 30

Ægir - 01.11.1987, Side 30
646 ÆGIR 11/87 Alda Möller: Um fisksins aðskiljanlegu náttúrur Sveiflur érlendis eru margir þátttakendur í um- ræðum um fiskveið- ar og fiskvinnslu og hljóta ókunnugir fljótt að sann- færast um að líf okkar mótast öðru fremur af því hvernig þar gengur og að ástandið er æði sveiflukennt. Ýmist er fiskskortur á mörkuðum eða birgðir hlaðast upp, ýmist er mannekla eða at- vinnuleysi. Ýmist er aflahrota eða ördeyða. Allt þetta ber keim af sveifium þess atvinnulífs, er byggir á vertíðum og er enn að mörgu leyti á stigi veiðimennsku frekar en iðnaðarþjóðfélags. í rannsóknastörfum þekkjum við þessar sveiflur líka. Eina vikuna er mikill áhugi fiskverkenda á einhverju verkefni eða vanda- máli, en þeir sýna síðan niður- stöðum lítinn áhuga. Kemur þá ýmist í Ijós að vandamálið leið hjá eða að önnur voru í millitíð- inni orðin miklu stærri. Oft kemur líka upp viss tog- streita hjá þeim er vinna að rann- sóknum í þágu atvinnuveganna. Hugsunin er annars vegar sú að komast til botns í viðfangsefninu, binda alla lausa enda - en hins vegar að skila niðurstöðum strax og þær hafa hagnýtt gildi, þó að þær veki fleiri spurningar en þær svara. Hið fyrra er nær eðli vís- indalegra rannsókna. Náin tengsl við fiskiðnaðinn krefjast þess hins vegar, að sífellt sé unnið að verk- efnum sem hafa beint hagnýtt gildi og þar þarf rannsóknafólkað temja sér meiri óþolinmæði en hingað til og betra tímaskyn. Iðn- aðurinn þarf hins vegar í auknum mæli að ráða til sín fólk er sjálft vinnur að ýmsum athugunum, en kann jafnframt að nota sér starf- semi rannsóknastofnana og að fylgja verkefnum eftir. Hollt og gott Að mörgu leyti erekki amalegt að taka þátt í rannsóknum á fiski þessi árin því að fá matvæli þykja hafa roð við fiski að næringar- gildi. íslendingar hafa reyndar alltafvitað um hollustufisks-t.d. skrifaði íslenskur lífeðlisfræðingur árið 1930 þjóðlega bók um matár- æði og sagði það almæli að fiskur gerði menn gáfaða. Athygli manna hefur undanfarið beinst mest að hollustu fiskfitunnar og fram komið að hún sé beinlínis hjartastyrkjandi og m.a.s. að neysla á mögrum fiski verndaði menn gegn hjartaáföllum. í þessum umræðum þykir mér gleymast að fiskur stendur fyrir sínu í fæði fólks alveg án tilvitn- unar í lífshættulega sjúkdóma. Lýsi er sjálfsagt að selja sem lyf við sjúkdómum en fisk á að selja sem mat, sem hægt er að njota vegna efnisgæða og í kaupba?11 með góðri samvisku. Næringar- fræðin ein stendurekki undirsölu áfiski, holltverðureinnigaðvera gott. í sölu á íslenskum þorski finnst mér t.d. að leggja e'81 áherslu á, að hann er bragðmild' áferðargóð náttúruafurð ur ómenguðum sjó, próteinrí fæða, auðmelt og orkusnauð. Tvennt hið síðastnefnda er miki hjartans mál, t.d. eldra fólki og fólki er borðar oft á veitingahús- um. í ofneysluþjóðfélögum, Þar sem fáir vinna erfiðisvinnu, mun verða lögð vaxandi áhersla á, a fæði sé létt og þá fitulítið til a halda sér í formi. Nýjar neyslu- venjur ryðja sér líka til rúms a saltfiskmörkuðum okkar og mér er sagt að tandurfiskurinn *e útvatnaður svo lengi og vel a hann líkist helst nætursaltaða fiskinum okkar. Meðalfeitan fis s.s. kola og karfa má selja undir sömu kjörorðum og þorsk en fyrir feitan fisk s.s. síld og lax verður að höfða til bragðgæða og tram reiða sem sérrétt (delicacy). hetta kunnu æsir, til forna því að h°r kvað: „Át ég í hvíld, áður heiman fór ég, síld og hafra, saddur er ég enn".

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.