Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1987, Síða 38

Ægir - 01.11.1987, Síða 38
654 ÆGIR 11/87 vatnsþéttum þverskipsþilum í eítirtalin rúm, talið framan frá: Stafnhylki fyrir ferskvatn; hliðarskrúfu- rými; hágeymar fyrir brennsluolíu; fiskilestar og meltugeymar í síðum ásamt botngeymum fyrir brennsluolíu framantil og ferskvatn aftantil; véla- rúm með vélgæsluklefa fremst s.b.-megin og geym- um í síðum; og aftast skutgeymar fyrir brennsluolíu, auk þurrgeyma. Fremst á neðra þilfari er stafnhylki fyrir ferskvatn, þá keðjukassar og þar aftan við hlífðarfata- og þvotta- aðstaða. Vinnslusalur er þar aftan við með fiskmót- töku aftast og lokuðum vinnugangi aftantil s.b.- megin. Til hliðar við fiskmóttöku er dælurými og vélareisn s.b.-megin, en ketilrými og vélareisn b.b.- megin, og aftast á neðra þilfari er samtengt rými, þ.e. stýrisvélarrými fyrir rniðju, hjálparvélarrými s.b.-megin og verkstæði b.b.-megin. Mesta lengd ........................ 56.42 m Lengd milli lóðlína (VL = 5.20 m) 54.17 m Lengd milli lóðlína (kverk) 51.91 m Breidd (mótuð) 12.60 m Dýpt að efra þilfari 7.70 m Dýpt að neðra þilfari 5.20 m Djúprista (hönnunar) 5.20 m Eiginþyngd .......................... 1437 t Særými (djúprista 5.20 m) ........... 2064 t Burðargeta (djúprista 5.20 m) 627 t Lestarými ............................ 702 m3 Meltugeymar ....................... 91. 5 m' Brennsluolíugeymar (svartolía) 181.4m3 Brennsluolíugeymar (gasolía) ........ 40.7 mJ Set- og daggeymar 16.3 m1 Ferskvatnsgeymar 149.8 m3 Andveltigeymir .................... 139.5 m3 Ganghraði ......................... um 15 hn Rúmlestatala 883 brl Skipaskrárnúmer 1833 Á efra þilfari eru þilfarshús meðfram báðum síðum og togþiIfarið þar á milli með lokuðum gangi framantil. í umræddum þilfarshúsum eru íbúðir aftur fyrir miðju. S.b.-megin aftan við íbúðir er stiga- hús niður á neðra þilfar, og þar aftan við dælurými, netageymsla og vélarreisn með stigagangi niður á neðra þilfar. B.b.-megin aftan við íbúðir er neta- geymsla, þá dælurými, lásageymsla og vélareisn aftast með stigagangi niður á neðra þilfar. Vörpu- renna kemur í framhaldi af skutrennu og greinist hún í fjórar bobbingarennur, sem liggja í gangi fram að stefni, þannig að unnt er að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til veiða. Yfir afturbrún Togþilfar séð úr brúnni. Ljósmynd: Tæknideild/ER. skutrennu er toggálgi, en yfir frambrún skutrennu er bipodmastur, sem gengur niður í skorsteins- og stiga' húsin. Togblakkir eru á vökvaknúnum gálgum, sem fella má niður í skutrennu, svonefndir „ísgálgar • Hvalbaksþilfar (neðra), er heilt frá stefni aftur a skipsmiðju, en þar greinist það í tvennt og meðfram báðum síðum aftur að bipodmastri- neðra hvalbaksþiIfari er lokuð yfirbygging frá stetm aftur undir skipsmiðju. Fremst í henni ergeymsla en íbúðir aftantil. Aftast á efra hvalbaksþiIfari er brU skipsins sem hvílir á reisn. Fremst í reisn er andve geymir. Á brúarþaki er ratsjár- og Ijósamastur. Vélabúnaður: Aðalvél skipsins er Wártsila Vasa, sex stro ^ fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkælingu, se ^ tengist niðurfærslu- og skiptiskrúfubúnaði, n1 innbyggðri kúplingu, frá Ulstein. í skipinu er Uqq aður til brennslu á svartolíu, með seigju allt að sec R1.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.