Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1987, Síða 41

Ægir - 01.11.1987, Síða 41
11/87 Æ.GIR 657 KW rafmótorum. Stýrisvél er búin tveimur rafdrifn- urn vökvaþrýstidælum. I vélarúmi er kælikerfi (frystikerfi) frá Sabroe fyrir plötufrystitæki, lausfrysti og frystilestar, kælimiðill Freon 22. Kæliþjöppur eru þrjár: ein af gerð SAB 163 H-F, knúin af 180 KW rafmótor, afköst 200000 kcal/klst (232.5 KW) við -M0°C/-/+20°C; ein af §erð SAB 128 H-F, knúin af 84 KW rafmótor, afköst 93800 kcal/klst (109.1 KW) við h-40°C/-/+20°C; og ein af gerð TCMO 28, knúin af 27 KW rafmótor, afköst 30100 kcal/klst (35 KW) við -r-40°C/-/+20°C. Fyrir matvælageymslur eru tvær rafdrifnar loft- kaeldar kæliþjöppur, kælimiðill Freon 12 fyrir kæli en Freon 502 fyrirfrysti. íbúðir: Ibúðarými er samtals fyrir 28 menn í tíu eins- rnanns klefum og níu 2ja manna klefum, auk sjúkraklefa. Allir klefar eru með sérsnyrtingu (sal- erni og sturtu). Fremst á neðra þilfari er hlífðarfata- og þvotta- klefi, ásamt salernisklefa, og stigagangur, sem fengir saman íbúðir í þilfarshúsum á efra þilfari. í þilfarshúsi, s.b.-megin á efra þilfari, eru tveir 2ja manna klefar fremst, en þar aftan við setustofa og borðsalur (samliggjandi), eldhús og aftast matvæla- geymslur, þ.e. ókældgeymsla, kæli-ogfrystigeymsla. I þilfarshúsi, b.b-megin á efra þilfari, eru tveir 2ja manna klefar fremst, og þar aftan við sjö eins manns klefar. í íbúðarými á hvalbaksþilfari er íbúð skipstjóra (svefnklefi, setustofa og snyrting) fremst s.b.-megin °g þar aftan við tveir 2ja manna klefar og sjúkraklefi aftast. B.b.-megin er setustofa fremst og þar aftan við þrír 2ja manna klefar. Fyrir miðju í þessu rými er saunaklefi og snyrting með salerni og sturtu fremst, þá klefi 1. stýrimanns og klefi yfirvélstjóra aftast, aftan við íbúða- og stigaganga. í stigagöngum, bæði frá hvalbaksþilfari upp í brú og niður á efra þilfar, eru salernisklefar. Ibúðir eru einangraðar með 100 mm steinull og klæddar með eldtefjandi plötum. Vinnuþilfar (fiskvinnslurými): Vökvaknúin fiskilúga er framan við skutrennu og veitir aðgang að fjórskiptri fiskmóttöku, um 55 m3 að stærð, aftast í fiskvinnslurými. í efri brún skut- rennu er vökvaknúin skutrennuloka, sem er felld lóðrétt niður. Fiskmóttöku er lokað vatnsþétt að framan og á henni fjórar vökvaknúnar rennilúgur til losunar. Framan við fiskmóttöku eru þrjú blóðgunarker í hvorri síðu, með hallandi botni inn að miðju og vökvaknúnum lúgum til losunar. Færibönd flytja aflann úr móttöku inn á blóðgunarband milli blóðg- unarkera. Laus aðgerðarborð, sem lögð eru á milli færibands og blóðgunarkera, eru notuð í handað- gerð. Undir blóðgunarbandi er lárétt færiband, sem flytur aflann í átt að móttöku og inn á tröppubönd og tilheyrandi færibandakerfi, sem fæðir blóðgunar- kerin í hvorri síðu. í skipinu eru fjórar megin vinnslurásir, auk meltu- vinnslu, þ.e.: - Flakavinnsla (bolfiskur) — Flakavinnsla (karfi) - Heilfrysting (karfi, grálúða) — Marningsvinnsla (gulllax) borösal skipsins á efra þilfari og setustofu á hvalbaksþilfari. Ljósmyndir: Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.