Ægir - 01.10.1991, Síða 36
536
ÆGIR
10/91
að viðbættum leiðréttingum vegna
verðmætis skipa, kvóta o.fl -
má vanmeta vinnuna í fjármálun-
um, en sá þáttur er oftast tímafrek'
astur, sérstaklega ef um er að ræða
umfangsmikla fjárhagslega endur-
skipulagningu.
4. stig: Nýtt fyrirtæki
Nýtt fyrirtæki verður að leggj3
upp með ákveðin heildarmarkmið
og starfsgrundvöll, sem stjórn og
framkvæmdastjóra ber að vinna
eftir. Af sjálfsögðu verður alltaf ao
vera fyrir hendi nokkur sveigjan'
leiki varðandi tilhögun vinnslu og
veiða, en þó þannig að unnið se
innan þess ramma sem settur var i
upphafi. Aðalatriðið er að bregða
ekki út af leikskipulaginu svo tekm
sé samlíking úr íþróttunum, nema
sérstök ástæða sé til. Hins vegat
gefur auga leið að innan leikskipu-
lagsins verður að vera svigrúm n
að aka seglum eftir vindi.
Höfundur er rekstrarráðgjafi Hjá
Nýsi hf.
UTGERÐARMENN ATH!
Eigum á lager, flestar gerðir af teinaefnum
frá Hampiðjunni, netaflögg, línuflögg, grá-
sleppuflögg, baujustangir, baujuljós, línu-
bala, ábót nr. 7, víralása, blakkir, vatns-
spennur, sjófatnað og flestar gerðir af vírum.
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
w Netagerð Höfða hf.
Húsavík, sími 96-41999.
kvæmur vegna forsögunnar, t.d.
kann sumum að finnast erfitt að
leggja niður gömul og gróin fyrir-
tæki. Þess vegna getur verið betra
fyrir heimamenn að fá utanað-
komandi aðstoð strax í upphafi,
t.d. við að sýna fram á nauðsyn
hugsanlegrar sameiningar, og að
skipuleggja vinnutilhögun máls-
ins.
2. stig: Markmið
Ná verður samkomulagi um
markmið með sameiningu/endur-
skipulagningu. Það verður að
grundvallast á því að búið verði til
fyrirtæki sem líklegt er að geti
staðið sig í samkeppni við önnur
fyrirtæki um veiðiheimildir o.fl.
og geti þar með treyst atvinnu í
byggðarlaginu. Til að þessi mark-
mið náist verða hlutaðeigandi
aðilar að vera sammála því að
leitað verði allra leiða til að
hámarka arðsemi nýja fyrirtækis-
ins. Fortíð gömlu fyrirtækjanna,
svo sem viðskiptatengsl, má ekki
binda hendur nýja fyrirtækisins.
3. stig: Sameiningin
Eftir að samkomulag hefur náðst
um markmið og vinnulag kemur
að nánari athugun. Fyrsta spurn-
ingin er hvað hafa menn í hönd-
unum, s.s. eðli starfsemi, eignir,
starfsfólk, þekkingu, veiðiheim-
ildir o.s.frv. Hvernig er hægt að
spila best úr þessu þannig að ný
eining verði sem öflugust? Er hægt
að selja eignir, hvaða fyrirgreiðslu
er hægt að fá o.s.frv.? Mikilvægt
er að koma að málinu með opnum
huga og velta upp eins mörgum
kostum og raunhæft er. Eftir
nokkra útreikninga og könnun
ættu að liggja fyrir 2-3 líkön af
hugsanlegu nýju fyrirtæki þar sem
kostir, gallar og möguleikar hvers
líkans eru metnir. Sá kostur sem
mönnum líst best á yrði síðan
útfærður betur.
Samhliða rekstrarathugunum
verða væntanlegir eignaraðilar að
koma sér saman um eignaraðild,
sem myndi byggjast að mestu leyti
á efnahagsreikningi fyrirtækjanna