Tímarit lögfræðinga - 01.06.1970, Blaðsíða 12
naut sín þess vegna vel í öllum þessum störfum, enda léttu
meðfædd sanngirni, ágæt dómgreind og góð lagaþekking
honum dómarastörfin.
Embætti hæstaréttardómara er að vísu fjölbreytt vegna
margháttaðra úrskurðarefna, en befur í för með sér
nokkra einangrunarhættu, einkum ef ]>ví er gegnt mjög
lengi. Enda var það yfirdómarinn Bjarni Thorarensen,
sem orti:
Ekki er hollt að hafa ból,
liefðar uppá jökultindi.
Skaphöfn Jónatans gerði honum flestum auðveldara að
standast þá þraut. Hann skildi hver vandi er af þessu
búinn bæði dómaranum sjálfum og samskiptum hans við
aðra, ef ekki er höfð full gát á.
Auk aðalstarfa sinna voru Jónatan falin margvisleg
trúnaðarstörf, svo sem formennska ríkisskattanefndar,
sáttasemjarastörf i vinnudeilum fyrr og síðar, fulltrúa-
störf á þingi Sameinuðu þjóðanna og ýmist einum eða
ineð öðrum samning fjölda lagafrumvarpa. Öll þessi störf
leysti Jónatan af hendi með þeirri prýði, sem einkenndi
hann og verk hans. & þar skemmst að minnast þess, að
í fyrra var hann skipaður i sáttanefnd til lausnar hinum
miklu vinnudeilum, sem þá voru yfirvofandi. Loks undir-
bjó hann hina nýju löggjöf og reglugerð um Stjórnarráð
íslands.
Á aðfangadag 1930 kvæntist Jónatan Rósu (Sigurrós)
Gísladóttur og hafa þau sdðan búið saman í fágætlega
hamingjusömu hjónabandi. Efnahagur Jónatans var
stundum heldur þröngur, eins og verða hlýtur um þann,
sem er í útdráttarsamri stöðu með takmörkuðum tekjum.
En þau hjón gættu alltaf fyllstu ráðdeildar og hefur heim-
ili þeirra ætið verið með afbrigðum vistlegt og ánægjulegt
þangað að koma. Hygg ég og leit að manni, sem um-
hyggjusamari sé um heimili sitt, konu og börn, en Jónatan
var.
100
Tímarit lögfræðinga