Tímarit lögfræðinga - 01.06.1970, Síða 13
Börn þeirra hjóna eru þrjú: Halldór lögfræðingur, skrif-
stofustjóri Landsvirkjunar, sem er kvæntur Guðrúnu Dag-
bjartsdóttur, Bergljót, kona Jóns Sigurðssonar ráðuneytis-
stjóra, og Sigríður, kona Þórðar Þ. Þorbjörnssonar verk-
fræðings. Öllum kippir þeim systkinum í kyn til sinna
góðu foreldra og geta sér hvarvetna hið bezta orð.
Við Jónatan höfum nú þekkzt hátt á fimmta ára-
tug og lengst af mjög náið. Á lagadeildar-árum okk-
ar urðum við þegar samrýmdir, vorum þá m. a.
báðir áhugasamir um stjórnmál og tókum þátt í starfi
Frjáislynda flokksins, og lukum lagaprófi með dags milli-
bili vorið 1930. Síðan hafa leiðir okkar legið saman með
margvíslegum hætti. Því fer þó fjarri, að við höfum ætíð
verið sammála. Um stjórnmál töluðum við t. d. alls ekki
saman í mörg ár og innti ég hann á fullorðinsárum aldrei
eftir skoðunum hans á þeim. En í ótal öðrum efnum, ekki
sízt varðandi filókna lagasetningu, hefur Jónatan verið
mér ómetanlegur ráðgjafi.
Svo vildi til, að hinn 18. desember s.l. kom Jónatan til
mín til að afhenda mér síðustu útgáfu af frumvarpi að
reglugerð um Stjórnarráð Islands. Hann sagðist þá vera
að koma úr Hæstarétti og hefði þar og þá skilað af sér
dómarastörfunum til félaga sinna. Kom tal okkar þar, að
við sammæltum okkur ásamt konum okkar um kvöldið
og áttum saman mjög ánægjulega stund. Félaga sína og
starfsfólk í Hæstarétti kvaddi Jónatan svo heima hjá sér
daginn eftir, en veiktist þá um nóttina eftir. Siðan hefur
liann legið fársjúkur þangað til hann andaðist að morgni
hins 19. janúar.
Ég vissi raunar, að Jónatan hafði lengi verið lieilsuveill,
en ekkert slikt var á honum að sjá á síðustu samfundum
okkar. Við ri'fjuðum þá upp ýmislegt, sem á dagana hefur
drifið.
Okkur kom saman um, að leiðust væri sú manntegund,
sem þættist sjálf alfullkomin og krefðist fullkomleika af
öðrum, því að eitthvað mætti með rökurn að öllum finna.
Tímarit lögfræðinga
101