Tímarit lögfræðinga - 01.06.1970, Page 18
Ákvæði þessu hefur verið heitt með lögjöfnun gegn lög-
manni fyrir bersýnilega tilefnislausa ákæru.1 *)
3. Svo sem áður gat, eru hliðstæð ákvæði i XIX kafla
laga nr. 82/1961 um meðferð opinherra mála.
a. I 159. gr. segir, að ef verjandi eða sækjandi geri sig
seka um vanrækslu eða skeytingarleysi i starfa sinum,
geti dómari dæmt honum sekt. Sektum virðist þó hér
sjaldan heitt, en hins vegar vítum. Þannig hefur lögmaður
verið vittur fyrir löglausar og fjarstæðukenndar kröfur
um rannsókn sakaratriðis og meðferð máls, sem höfðu i
för með sér drátt á inálinu.-) Einnig hefur lögmaður veríð
sviptur verjandaskipun sinni vegna framkomu sinnar við
rekstur opinbers máls.3)
Skylt þessum ákvæðum, sem hér hefur veríð fjallað um,
er ákvæði 6. mgr. 174 gr. laganna, en þar er beint heim-
ilað að dæma inönnum sekt fyrir tilefnislausa kæru.
Hefur því ákvæði verið beitt.4)
b. Þá segir i 160. gr., að sekta megi þann, sem hafi
ósæmileg urnmæli, skrifleg eða munnleg fyi*ir dómi um
dómara eða aðra, eða komi að öðru leyti lmeykslanlega
eða ósæmilega fram fyrir dómi. I dómasöfnum ei*u all-
mörg tilvik um þessi brot. Refsingar þær, sem beitt hefur
verið, eru ekki þungar miðað við það, sem annars staðar
tiðkast urn hliðstæð brot.5)
1) Hrd. XXIII, bls. 584. Lögmanni dæmd sekt, kr. 300.00.
Bæði aðiljar og lögmenn hafa marigsinnis sætt vítum af Hæsta-
rétti fyrir tilefnislausar kærur.
2) Hrd. XXXII, bls. 34.
3) XXXII, bls. 376.
4) Hrd. XXVIII, bls. 100. Lögmanni, réttargæzlumanni sak-
aðra manna, dæmd sekt, kr. 500.00, fyrir tilefnislausa kæru í
opinberu máli.
5) T. d. Hrd. XXVII, bls. 457. Se‘kt, 'kr. 300.00, fyrir ósæmi-
leg ummæli um dómara og aðstoðarmenn hans. Sératkvæði um,
að sekt væri kr. 600.00. Hrd. XXVIII, bls. 722. Sekt, kr. 100.00,
fyrir ósæmileg ummæh verjanda í opinberu máli um opinbera
starfsmenn. Við ákvörðun refsingar virðist þess hafa verið
106
Tímarit lögfræðinga