Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1970, Síða 27

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1970, Síða 27
ar réttarreglur og tapaði máli af þeim sökum, eðá sæi ekki atriði í máli, sem augljós mætti telja og áhrif hefðu á úrslit máls. Hins vegar er ljóst, að krefjast verður veru- legrar sakar til þess, að ábyrgð sé lögð á lögmanninn. Þess verður að krefjast af lögmanni, að hann flytji mál af þeirri þekkingu og skvnsemi, sem almennt verður að kref j- ast af lögmönnum. Það mark er ef til vill erfitt að ákveða og ljóst er, að það getur breytzt á mismunandi tímum. Hreyfa mætti þvi í þessu sambandi, að hér væru hags- munir málsaðilja sjálfra um of fyrir borð bornir. Þess er þá að gæta, að sú virðist vera stefna dómstóla hér á landi að líta sjálfstætt til efnisatriða, og takmarka sóknar- og varnaratriði eigi strangt við það, sem lögmenn hafa fram fært. Þó megi lögmenn eigi gleyma þvi, að það er þeirra að flytja mál og afla gagna, en eigi dómstólanna. Hér á landi er htið um dóma, er skera úr um skaðabóta- skyldu lögmanna i þessum tilvikum, þótt reyndar megi merkilegt teljast. Hugsanlegt er, að lögmaður verði skaðabótaskyldur gagnvart þriðja manni, enda hafi hann með framferði sínu sem lögmaður valdið honum tjóni. Slíkt virðist helzt geta orðið i þeim tilvikum, er lögmaðurinn veldur um- bjóðanda sínum tjóni, sem orsakar það beint, að þriðji maður verði einnig fyrir tjóni. Ekki munu hafa gengið dómar um þetta atriði hér á landi. 2. Þótt málflutningur og störf í samhandi við málflutn- ing sé aðalstarf margra lögmanna, þá má segja, að veru- legur hluti af störfum hvers lögmanns sé ráðgjafarstörf. Ráðgjafarstöi'f þessi geta hæði verið á sviði viðskipta- mála og persónuréttarlegs eðlis. Hér er uiri mjög vitt svið að ræða og allerfitt viðfangs. Algengt er að leitað só til lögfræðinga um ráð varðandi viðskipti, sem skipta mjög miklu máli fjárhagslega. Áhætta sú, sem lögmaður tekur á sig, er þvi veruleg. Gera verður þá kröfu til lögmanns- ins, að liann þekki þau lagaatriði, sem um er spurt og gefi rétt ráð, að þvi er þau varðar. Gefi hann rangar upp- Tímarit lögfræðinga 115
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.