Tímarit lögfræðinga - 01.07.1978, Qupperneq 26
æfingum og hentugri útivinnu, svo og með því að kenna þeim atvinnu-
greinar, sem komið geta þeim að gagni, er þeir hafa fengið frelsi sitt
aftur. 1 rgj. 150/1968 segir svo um kennslu í 51. gr.: „Kennsla, verk-
leg eða bókleg, skal fara fram a.m.k. 4 klukkustundir í viku hverri eftir
nánari ákvörðun dómsmálaráðherra að fengnum tillögum fangelsis-
stjórnar. Föngum 24 ára og yngri skal skylt að taka þátt í námi. Eldri
föngum má veita kost á að taka þátt í námi. — Fangelsisstjórn getur
leyst fanga undan námsskyldu, ef námið telst honum ekki nauðsynlegt
vegna menntunar eða af öðrum ástæðum.“
11. 38/1973 segir í 8. gr., að vera skuli aðstaða og tæki til fjölbreyttr-
ar vinnu og til kennslu, bæði bóklegrar og verklegrar. 1 9. gr. laganna
er kveðið svo á, að í unglingavinnuhælum skuli skapa aðstöðu á svip-
aðan hátt og í öðrum vinnuhælum, en að þar skuli leggja sérstaka
áherslu á aðstöðu til bóklegrar og verklegrar kennslu.
Ekkert af þessu hefur komist í framkvæmd fyrr en á síðustu árum,
og vantar auðvitað enn mikið á, að menntunarmálum fanga sé nægilega
sinnt. Tilfinnanlega hefur skort aðstöðu í íslenskum fangelsum, en auk
þess hefur fjarlægð Litla-Hrauns frá höfuðborginni verið nokkur drag-
bítur. Til þess að unnt sé að kenna einhverjar iðnir, þarf annaðhvort
að vera aðstaða til þess í stofnuninni sjálfri eða möguleikar til að senda
fanga í nám utan hennar. Fyrir noklcrum árum var á Litla-Hrauni hafin
regluleg kennsla á vetrum í fáeinum undirstöðugreinum (íslenska,
reikningur, enska og þjóðfélagsfræði), og er þátttaka fanga í þessu
námi frjáls. Auk þess fer nú fram regluleg tilsögn í ýmsum iðngrein-
um, einkum trésmíði, leirmunagerð, leðurvinnu og vefnaði. Þau mennt-
unartæki önnur, er fangar hafa á Litla-Hrauni, eru útvarp, sjónvarp,
dagblöð og bækur. Bókakostur hælisins hefur aukist undanfarin ár.
Skráning og útlán bóka virðast nú komin í allgott horf. Fangar mega
láta færa sér bækur án verulegra takmarkana. Þess má að lokum geta,
að nýtt bókaherbergi er í nýbyggingunni á Litla-Hrauni.
2) Vinna. 1 37. gr. hgl. er kveðið á um vinnuskyldu. Jafnframt segir,
að um vinnuna og vinnulaun fanga skuli setja ákvæði í reglugerð. í
8. gr. 1. 38/1973 er vinnuskyldan áréttuð að því er vinnuhælin varðar.
Einnig er tekið fram, að séð skuli fyrir nægu húsrými, aðstöðu og
tækjum til fjölbreyttrar vinnu. Hefur ekki þótt vanþörf á að móta
þessa stefnu í lagaformi, því að mjög hefur skort á, að vinnuaðstaða
og verkefni væru næg á vinnuhælunum. Enn fremur er boðið í 8. gr.,
að föngum í vinnuhælum skuli séð fyrir aðstöðu til tómstundaiðkana,
eftir því sem við verður komið á hverjum stað. Þetta er nýmæli, og
segir svo um það í athugasemdum við frumvarpið, að tómstundaiðja
20