Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1994, Qupperneq 5

Ægir - 01.11.1994, Qupperneq 5
„Ég held aö þessi tvö ár hafi dugað til þess að Fiskistofa hefur sannað sig og gagnrýnin hefur fallib um sjálfa sig. Ég held ab það séu allir komnir að þeirri niðurstöðu núna að þetta hafa verið skref í framfaraátt. Allt þetta tal um bákn er svo til hætt að heyrast vegna þess ab menn hafa áttab sig á því að þetta er ekkert bákn." Þannig svarar Þóröur Ásgeirsson Fiskistofustjóri fyrir sig þegar hann er sagöur stjóma bákni sem þenjist stjóm- laust út í ríkisketfmu. Þegar skipulags- breytingar voru geröar í sjávarútvegin- um fyrir tœpum tveimur ámm og Fiski- stofa varð til urðu margir til þess aö gagnrýna þá ráðstöfun og telja hana ranga. Með tilkomu Fiskistofu voru samein- uð í einni ríkisstofnun verkefni sem voru unnin hér og hvar í ríkiskerfinu áður. Sumt var fœrt úr sjávarútvegs- ráðuneyti, annað frá Fiskifélagi íslands og Ríkismat sjávarafurða var lagt niður. Þetta leiddi til nokkurrar fœkkunar op- inberra starfsmanna og Þórður telur þannig ótvírœtt að spamaður haf náðst í heildina. „Við erum með tveimur starfs- mönnum færra nú en þegar Fiskistofa var stofnuð og erum ekki með neina útþenslustefnu þannig séð," segir Þórður. Hjá Fiskistofu starfa nú 59 starfs- menn. 38 þeirra unnu áður hjá ýmsum opinbemm stofnunum sem voru fœrðar undir Fiskistofu en við þessa breytingu fœkkaði opinberum starfsmönnum alls um 10. „Hitt er svo annað mál að það eru gerðar mjög miklar og vaxandi kröfur til stofnunarinnar, sérstaklega á eftir- litssviðinu. Ég býst við að þær kröfur leiði til þess að fjölgunar verði þörf." Fiskistofa hefur verið gagnrýnd nokkuð harkalega fyrir slcelega fratn- göngu í veiðieftirliti. Þessi gagnrýni hefur einkum komið úr röðum útvegs- manna og þeir hafa staðhœft að fiski sé hent í sjóinn, honum laumað fram- hjá vigt og yfirleitt gengið á svig við flest opinber fyrirmœli og veiðieftirlit Fiskistofu fái alls ekki komið höndum yfir skúrka. Er þessi gagnrýni þá rétt- mœt að einhverju leyti? Gagnrýnisraddir þagna „Ég fékk gott tækifæri til þess að ræða þessi mál við útvegsmenn á aðal- fundi LÍÚ á dögunum þar sem ég hélt erindi um veiöieftirlitið. Þá brá svo við ab engar gagnrýnisraddir heyröust, þær voru þagnaðar og það bendir til þess að menn hafi talað fyrst og hugs- að svo. Kristján Ragnarsson sagði reyndar skýrt að ekki væri hægt að koma í veg fyrir að menn hentu fiski í sjóinn ef þeir ætluðu sér þab og ekki mætti kenna eftirlitsaðilanum um brot sem þeir væru sjálfir að fremja. Kristján hélt sig reyndar við að segja að gagnrýnin á Fiskistofu væri réttmæt án þess að rökstyðja það frekar. Ég tel ab meirihluti manna sé ósammála honum." Veiðieftirlitið var áður í sjávarútvegs- ráðuneytinu og var til þess stoþtað með lögum frá 1976. Það kom reyndar í hlut Þórðar, sem þá starfaði í ráðuneytinu, að ráða fyrsta eftirlitsmanninn til starfa og koma eftirlitinu á laggimar. Við freistingum gæt þín „Upphaflega var þetta hugsað sem eftirlit á sjó, fyrst og fremst til að fylgjast með aflasamsetningu. Með þessum lögum kom fyrst heimild til skyndilokana væri of hátt hlutfall smáfisks í afla. Síðan hefur þetta þróast gegnum árin og fljótlega sáu menn að það var brýn þörf á virku eftirliti í landi. Verk- efnum hefur því fjölgað með breyttum áherslum og nýjum freistingum sem kvótakerfiö leiðir af sér." Hvort er þá vœnlegri kostur að auka veiðieftirlitið svo það geti sinnt þeim skyldum sem lögin fela því eða breyta lögunum þannig að dragi úr freistingum til þess að ganga á svig við lögin? „Það er ljóst að séu reglurnar þannig að engum detti í hug að brjóta þær, þá þarf ekkert eftirlit. Freistingarnar eru miklar í dag og mér finnst umræðan, t.d. meðal útvegsmanna, vera á réttri leið með því að skoða sérstaklega regl- urnar. Sjávarútvegsráðherra hefur sett á stofn nefnd undir forystu Kristjáns Þórarinssonar stofnvistfræðings hjá LÍÚ og er nefndinni ætlaö ab gera til- lögur um bætta umgengni um auð- lindina. Ég tel ekki, þó veiðieftirlitsmönnum hafi fjölgað frá þessum eina sem ráð- inn var í upphafi, að eftirlitið hafi vax- ið úr hófi fram. í dag eru starfandi 22 veiðieftirlits- menn. Þar af eru tveir bundnir hér á skrifstofunni. Hinir 20, sem sjaldan eru ab störfum allir í senn, þurfa að sinna eftirliti með rúmlega 2.000 skip- um og 70 höfnum að auki um land ÆGIR NÓVEMBER 1994 5

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.