Ægir - 01.11.1994, Side 10
Aðalfundur LÍÚ
Uggvænleg þróun - eigið fé minnkar
„Brýnasta verkefni fyrirtækja í
sjávarútvegi er a& aö styrkja eigin-
fjárstöðu sína svo þau geti staðist
sveiflur í aflaverðmæti, fiskistofnum
og öðrum þáttum sem hafa áhrif á
afkomu greinarinnar. Varað er við
þeirri uggvænlegu jiróun að eigin-
fjárhlutfall greinarinnar hefur
minnkað um 10% á þremur árum.
Þrátt fyrir nær óbreytt afurðaverð á
mörkuðum erlendis og stöðugt minnk-
andi þorskafla hefur sjávarútveginum
tekist aö aö aðlaga sig erfiðum aöstæö-
um í því efnahagsumhverfi sem grein-
in býr við.
Mikilvægt er að vextir á lánum
greinarinnar lækki þannig að sjávarút-
vegurinn fái staðið undir erfiðri
skuldastöðu sinni. í því sambandi
skiptir miklu að dregið veröi úr halla-
rekstri ríkissjóðs og þannig dregið úr
lánsfjárþörf hans á innlendum lána-
markaði.
Þá skiptir einnig miklu að opinberar
álögur verði ekki auknar á atvinnuveg-
inum. Því er mótmælt að lagðar skuli
sérstakar álögur á greinina með lögum
til þess aö standa undir úreldingu fiski-
skipa og fiskvinnsluhúsa. í engri ann-
arri atvinnugrein í frjálsu markaöshag-
kerfi þekkjast svipaðar kröfur. Skyn-
samlegra er að afrakstri af atvinnuveg-
inum í framtíðinni sé variö í nýfjár-
festingu og uppbyggingu. í dag er ekk-
ert nýtt fiskiskip í smíðum fyrir útveg-
inn þótt fyrir liggi mikil þörf á endur-
nýjun, t.d. loðnuflotans.
Fagnaö er áformum Fiskveiðasjóðs
um að veita þeim útgerðum, sem
verða fyrir mestri kvótaskerðingu
vegna þorskbrestsins, lán á meðan þau
eru að komast yfir erfiðasta hjallann.
Uppbygging þorskstofnsins er án
nokkurs vafa arðbærasta fjárfesting
sem þjóðin getur tekið sér fyrir
hendur. Þess vegna er mikilvægt að
þeim hluta flotans sem verður fyrir
mestum áföllum vegna þessa verði
hjálpað með því að fella niður
tímabundið opinber gjöld svo sem
tryggingargjald launa og aflagjald.
Staða sjávarútvegsins væri önnur og
verri ef ekki hefði verið stöðugt verö-
lag hér á landi undanfarin ár. Mikil-
vægt er að standa áfram vörð um þann
árangur sem náöst hefur í efnahags-
stjórnun þjóðarbúsins. Lægri verð-
bólga á íslandi en í nágrannalöndun-
um er forsenda þess að samkeppnis-
staba íslenskra fyrirtækja batni og
atvinnulifið eflist á ný og geti mætt
þeirri skyldu sinni að útvega 20.000 ný
störf fram til aldamóta. Til þess aö svo
megi verða þarf samstillt átak stjórn-
valda, heimila og fyrirtækja."
Þannig hljóðar efnahagsályktun 55.
aðalfundar LÍÚ sem haldinn var á Hót-
el Sögu 27.-29. október sl. Á fundinum
voru margar ályktanir gerðar og sam-
þykkt að hvetja til þess að hvalveiðar
hefjist að nýju strax næsta sumar.
Rækjuveiðar
Rækjuveiðar voru mikið ræddar á
fundinum og samþykkt aö hvetja til
þess að auka heildarafla úthafsrækju á
fiskveiöiárinu 1994-1995 og leyft verði
að veiða 5% umfram aflamark úthafs-
rækju sem flytjist þá milli ára. Aðal-
fundurinn skorar á sjávarútvegsráð-
herra að fella úr gildi svæðaskiptingu á
úthafsveiðirækju og telur engin rök
hníga til þess ab skip norðan Bjarg-
tanga og austan Ingólfshöfða séu rétt-
minni til rækjuveiða við ísland en
úthafsveiðirækjuskip vestan Ingólfs-
höfba og sunnan Bjargtanga sem mega
veiða allt umhverfis landið.
Meira frelsi
Aðalfundur LÍÚ skorar á Alþingi ísl-
endinga að taka til endurskoðunar 12.
grein og 23. grein í lögum um stjórn
fiskveiða sem þingið samþykkti í maí
1994. Markmiöið er ab rýmka á ný
heimildir til framsals aflaheimilda en
nú er bannað að flytja meira aflamark
til skips en sem nemur aflamarki því
sem skipinu var úthlutab í upphafi árs.
Hvatt er til breytinga þannig að flutn-
ingur milli skipa í eigu sömu útgerðar
sæti ekki takmörkunum og ákvæðin
verði þannig að óheimilt sé að flytja til
skips aflamark hafi skipið látið frá sér
meira en 15% af úthlutun í sömu teg-
und.
Efla þarf
Landhelgisgæsluna
Aðalfundur LÍÚ skorar á ríkisstjórn-
ina að efla starfsemi Landhelgisgæsl-
unnar. Nú, þegar íslenski fiskiskipa-
flotinn sækir í stórauknum mæli á
fjarlæg mið, er nauösynlegt að
Landhelgisgæslan hafi yfir að ráða
stórum og vel búnum varðskipum sem
þjónað geti hlutverki sínu sem
björgunar- og aðstoðarskip. Með
hliðsjón af þessu er nauðsynlegt að
hefjast nú þegar handa við undir-
búning að byggingu nýs varðskips.
Þá veröur að gera þá kröfu að séð
verði fyrir nægilegu fé á fjárlögum til
þess aö reka hina nýju björgunarþyrlu
án þess að skert veröi sú þjónusta sem
Landhelgisgæslan getur veitt miðað
við þann skipakost sem hún hefur yfir
að ráða. □
Ostrumeistari
Sam Tamsanguan opnaði og framreiddi flestar ostrur í keppni sem nýlega
fór fram í London á vegum Tabasco-sósufyrirtækisins en slík sósa þykir einmitt
ómissandi þegar ostrur eru á borðum. Sam opnaöi 30 stykki á 3 mínútum og
41 sekúndu. Þess má geta að Sam varð í öðru sæti í heimsmeistarakeppni í
ostruopnun sem fram fór á írlandi fyrr á árinu en þar laut hann í gras fyrir
Bertrand Gonthier frá Frakklandi.
(Seafood News okt. 1994)
10 ÆGIR NÓVEMBER 1994