Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1994, Page 11

Ægir - 01.11.1994, Page 11
Heilræði til eigenda kælikerfa Umræ&a um vanda kælikerfaeigenda hefur farib vax- andi eftir því sem skilningur manna eykst á hættunni sem umhverfinu stafar af gáleysislegri umgengni um þau. Sveinn Jónsson vélstjóri og baráttumaður fyrir bættum vinnubrög&um í kæliiðna&i tók saman eftirfar- andi heilræ&i fyrir eigendur kælikerfa: Búast má viö að verðlag á R-12 og R-502 muni verða tvö- falt hærra í lok ársins og jafnframt lækkandi verð á stað- gengiefnunum nýju. Framundan er allsherjar skráning kælikerfa til sjós og lands. Samkvæmt 15. grein ósón-reglu- gerðar eru fyrirmæli til þjónustuaðila um eigið innra eftirlit með ósóneyðandi kælimiðlum og ennfremur eru kvaðir um dagbókarfærslur og innra eftirlit lagðar á gæslumenn við þrýstiberandi kerfi sarriKvæmt reglugerð nr. 12/965 og vitn- ast til 16. greinar upp að 28. grein þeirrar reglugerðar. Til- búnir eru gátlistar í samræmi við báðar reglugerðirnar. Enn- fremur skráningarvottorð kælikerfa, þrýstiprófunar- og loft- tæmingarvottorð með hliðsjón af nýjustu tillögum í kæli- stöðlum. Héðan í frá er kæliþjónustumönnum ekkert að vanbúnaði að hefjast handa með eigið innra eftirlit og sam- ræmda skráningu allra þeirra kerfa er þeir þjóna. Hvaða heilræði eru til handa KFK-kælikerfaeigendum og notendum og eru vænleg til þess að leysa þau óumflýjan- legu vandamál sem blasa við nú þegar? Norsku heilræðin í Scanref 5. tbl. 1993 hæfa hérlendis þótt Norðmenn hafi tekið vandamálin til meðferðar fyrir nokkrum árum. Þau eru á þessa leið og höfða mjög vel tii íslenskra aðstæðna. 1. skref: Skrá yfirlit um eigin kælikerfi Gerð kerfis, aldur hvers kerfis, magn og tegund KFK hvers kerfis. Lekaferill hvers kerfis undanfarin ár. Hverjar eru orsakir lekans? Hvað er gert í þéttimálum? Hvað hefur sá leki kostað? Hafir þú ekki eigin kunnáttumann viður- kenndan til slíkrar úttektar ber þér að semja við viður- kenndan einstakling eða viðurkennt fyrirtæki vegna hins lögboöna forvarnareftiriits með ósóneyðandi efnum. 2. skref: Hefja framkvæmdir nú þegar og gera kerfin þétt Nýleg og eldri kerfi, illa hönnuð (með nýjustu kælistaðla í huga) og dýr í rekstri skal afleggja eða endurnýja (sjá 3. skref). Allar lagfæringar séu gerðar samkvæmt nýjustu kæli- stöðlum og sem kerfiseiganda ber þér aö leita eftir KFK-frá- hvarfstilboði yfir á viðurkennda miðla, 15-20 ára lausnir eða langframalausnir. Forvarnaeftirlitstilboði með kælikerf- um þínum skaltu gjarna leita eftir varðandi öll tiltæk ráð til að fyrirbyggja kælimiðilsleka og gangtruflanir. Við stærri kerfi skal setja lekaviðvörunartæki. 3. skref: Fá kostnaðartilboö Fá kostnaðartilboð um skammtíma 15-20 ára lausnir eða langframalausnir sem meta þarf eftir gerð og aldri KFK-kerf- anna og bera saman kosti R-22 og blöndur með R-22 ab hluta til sem hafa 0,03 eða lægri eyðingarmátt. Copland býður í stefnu sinni R-22 vélar með nýjum smurolíum sem hæfa framtíðar HFC-kælimiðlum. Á ný kerfi koma til greina R-143a og margar klórfríar HFK-blöndur eru í boði. Enn- fremur koma til greina á ný kerfi NH3 propan, isobutan og COz sem er verib að hefja til vegs og virðingar á ný. Vönduð kerfi með lekaferil í núlli síbustu ár starfi óbreytt um sinn. Safna skal R-12 og 502 til endurvinnslu af breytt- um og aflögbum kerfum til varasjóðs fyrir vönduðu kerfin er að ofan greinir þar til nýju efnin lækka verulega í verði. Frá og meb 1. janúar 1996 verður ekki leyft að nota R-22 á ný kælikerfi hérlendis samkvæmt reglugerð nr. 546 1. nóv. 1994. O MESA fiskvinnsluvélar Við kynnum MESA 300 B fjölnota fiskvinnsluvél Með vélinni má auðveldlega vinna eftirtalin verk: • Barða tindabikkju • Snyrta flök úr salti • Hausa og trimma kola og grálúðu LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA ÆGIR NÓVEMBER 1994 1 1

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.