Ægir - 01.11.1994, Síða 12
Skipavík í Stykkishólmi:
Alhliða þjónusta við flotann
„ I'aft hefur verið reynt að skjóta sem
flestum stoðum undir reksturinn og
við höfum ekki tekið mikinn þátt í
þeirri ævintýramennsku sem er í
kringum útbob í þessari
atvinnugrein," sagði Ólaf-
ur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Skipavíkur
hf. í Stykkishólmi, í sam-
tali vib Ægi. Skipasmíða-
stöðin Skipavík er ein af
fáum stöbvum á landinu
sem enn annast viðgeröir
á tréskipum. Ólafur sagði
að þeim færi fækkandi
sem kynnu til verka á því
sviði og erfitt væri orðið
að fá hæfa menn til þess.
Skipavík var stofnuð
1967 og á fyrstu árum
þess starfaði það einkum
ab skipasmíði, nánar tiltekið smíði tré-
báta. Samdráttur í þeirri atvinnugrein,
mannekla og dýr húsbygging kom fyr-
irtækinu í verulega erfiðleika á árunum
1973-75 en með tilstyrk nýrra hlut-
hafa og þátttöku Vélsmiðju Kristjáns
Rögnvaldssonar, Byggðasjóðs og Stykk-
ishólmsbæjar var því komið á laggirn-
ar á nýjan leik. Nú eru starfsmenn
20-25 eftir árstíðum og verkefnum og
fer hægt fjölgandi. Þeir voru fæstir um
15. Ársvelta Skipavíkur var um 90
milljónir á síðasta ári.
Staðan er góð
„Skuldastaða fyrirtækisins er allgóð
og með því lægsta sem gerist," sagði
Ólafur. „Við höfum ekki tapað mjög
miklu á þeim gjaldþrotum sem hafa
verið svo tíð á undanförnum árum.
Við höfum verið meb mörg og smá
verk og þannig dreift áhættunni ef svo
má segja."
Verkefni fyrirtækisins eru margþætt.
Enn eru stundaðar viðgerðir og breyt-
ingar á skipum og bátum. Dráttar-
brautin getur tekið upp 450 tonna
þunga og hægt er að taka allt að 27
metra löng skip inn í hús til viðgerða.
Skipavík getur þannig unnib í
nokkrum skipum í einu og þannig var
verið að sandblása lest í einum bát og
skipta um eikarplanka í öðrum þegar
Ægir ræddi við Ólaf. Þó Skipavík smíði
ekki skip lengur eru skip lengd, stækk-
uð og þeim breytt, skipt um vélar, ný
tæki sett upp og innréttingar smíðað-
ar.
Á undanförnum árum hefur fjárfest-
ingum í fyrirtækinu verið haldið í lág-
marki en lögð áhersla á viðhald.
Nýlega var bætt við tækjum til
smíði á frystipönnum en eftirspurn
eftir þeim hefur vaxib í kjölfar fjölgun-
ar frystitogara. Ólafur sagbi að pönn-
urnar væru næstum klæðskerasaumað-
ar fyrir hvern og einn viðskiptavin því
allir hefðu sína skoðun á því hvernig
pönnur væri best ab nota. Pönnurnar
eru ýmist úr ryðfríu stáli eða áli.
Smíðar vélar til
skelfiskveiða og vinnslu
Umtalsverð umsvif eru á sviði fram-
leibslu fyrir skip og báta og vinnslu í
landi. Skipavík framleiðir plóga til
skelfiskveiða, flokkunarvélar um borð í
bátana sem stunda veiðarnar og vélar
fyrir vinnsluna í landi. Þessi hluti starf-
seminnar hvílir á tryggum grunni
hörpudiskveiða sem stundaðar eru í
Breiðafirði og hefur vaxið fiskur um
hrygg með auknum veiðum á ígulker-
um við Breiðafjörð og víðar. Hluti
framleiðslunnar fer til útflutnings og
hefur Skipavík af því talsverðar tekjur.
Óiafur sagði að skelfiskvélarnar væru
að hluta til þeirra eigin hönnun en
reynslan hefði kennt mönnum sitt-
hvað í þeim efnum.
Nýjasta byltingin í hönn-
un skelplóga er að hafa þá
á hjólum sem léttir þá I
drætti og minnkar þar
með olíueyðslu skipsins og
dregur úr spjöllum á hafs-
botninum.
Skipavík selur ekki ab-
eins tæki til veiða og
vinnslu því Skipper-skip-
stjórastólar, sem fyrirtækið
flytur inn frá Danmörku,
hafa notiö talsverðra vin-
sælda. Skipavík hefur selt
slíka stóla um borð í tog-
ara og fiskiskip og þeir
þykja þægilegir og traustir.
Byggingavörur og
brennivín
Skipavík starfrækir byggingavöru-
deild þar sem seldar eru allar hefb-
bundnar byggingavörur, verkfæri,
málning, veiðarfæri og hvaðeina sem
flotann kann að skorta.
„Við reynum að veita viðskiptavin-
um okkar alhliða þjónustu hvort sem
þeir eru á sjó eða í landi. Rekstur bygg-
ingavörudeildarinnar hefur gengið vel
og skilaöi hagnaði á síðasta ári meðan
annar rekstur stóð í járnum," sagði
Ólafur.
Reyndar má halda því fram að
Skipavík sinni mjög mörgum þörfum
viðskiptavina sinna því nýlega var
opnaö útibú frá Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins í húsakynnum Skipa-
víkur og ÁTVR og Skipavík samnýta
starfsmenn vib afgreiðslu á áfengi og
byggingavörum.
Ólafur segir að framtíð Skipavíkur sé
ágætlega traust og kveðst vera fremur
bjartsýnn en efast um ab skipasmíöar
hefjist á ný í hans stjórnartíð. □
Úr Skipavík í Stykkishólmi.
12 ÆGIR NÓVEMBER 1994